Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Hungurverkfall í Hafnarfirði: „Ég mun deyja hér“

„Ég kalla þetta líf, ekk­ert líf„ segir Zesilua þegar blaða­maður stendur fyrir utan tvö rauð tjöld sem tjaldað hefur verið fyrir utan Útlend­inga­stofnun í Hafn­ar­firði og spyr þá sem inni sitja hvort þeir vilji tala.

Menn­irnir dvelja í tjöldum fyrir utan Útlend­inga­stofnun í Hafn­ar­firði. Mynd/ Lára Garð­ars­dóttir

Zesilua, Elah Amadou og einn annar koma skríð­andi út úr tjöld­unum í níst­ings­frosti og hávað­inn frá umferð­inni á Fjarð­ar­hrauni er yfir­gnæf­andi. Í það minnsta þrír umsækj­endur alþjóð­legrar verndar hafa tjaldað í mót­mæla­skyni þar sem þeir hafa nú verið sviptir lág­marks­þjón­ustu. 

„Við höfum ekki rétt á mat, strætókorti, ekk­ert að gera og svo er okkur bolað út, – Til hvers?“

Bú­setu­úr­ræði á veg­um rík­is­lög­reglu­stjóra í Hafnar­f­irði lokar klukkan 10 á morgn­anna og menn­irnir sendir út: „Við erum sendir út, en í hvað? Við eigum enga fjöl­skyldu hér eða aðstand­endur og erum án pen­inga.“

Elag hefur verið hér á landi síðan 2021.

Lýsa menn­irnir fram­göngu mála hjá Útlend­inga­stofnun sem enda­lausri bið sem engum árangri skili. Krafa mann­anna er afnám þjón­ustu­svipt­ing­ar­innar og að hljóta alþjóð­lega vernd hér á landi.

 „Ég mun deyja hér,“ segir Zesilua en menn­irnir eru í hung­ur­verk­falli og segja þeir félaga sína hafa reynt að færa þeim eitt­hvað til að borða en þeir neitað.

Mynd/LG

Útlend­inga­stofnun hefur engu skeytt um mót­mæli þeirra og lýsa þeir von­brigðum sínum og  eru þeir enda­laust þreyttir á bið­inni. Menn­irnir eru rétt­inda laustir og mega ekki að vinna eða sjá sér far­borða. „I want to work,“ segir einn þeirra en þar sem þeir eru ekki með kenni­tölu standa þeir rétt­inda­lausir. „Ég get ekki skilið, af hverju ég fæ ekki kenni­tölu. Ég sótti um kenni­tölu en var sagt að hætta að reyna.“

Endanleg synjun

„Rík­is­lög­reglu­stjóri tók við þessu bú­setu­úr­ræði af Vinnu­mála­stofn­un og úrræðið er fyr­ir þá sem eru komn­ir með end­an­lega synj­un. Þeir geta verið í úrræð­inu í 30 daga en ef þeir eru í sam­starfi geta þeir verið leng­ur.

Ef menn eru ekki til­bún­ir til sam­starfs, sem lít­ur helst að öfl­un ferða­skil­ríkja, þá er þjón­ust­an felld niður í sam­ræmi við 33. grein út­lend­inga­laga eft­ir að henni var breytt,“ segir Krist­ín María Gunn­ars­dótt­ir, deild­ar­stjóri stoð­deild­ar rík­is­lög­reglu­stjóra, í sam­tali við mbl.is. Jafn­framt kemur fram að mönn­unum sé vel­komið að nýta sér bú­setu­úr­ræði rík­is­lög­reglu­stjóra að því gefnu að þeir séu sam­vinnu­þýðir að sín­um brott­flutn­ingi sam­kvæmt ákvæðum út­lend­inga­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða