Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Tveir menn hætt komnir í tanki sem fylltist af sjó: „Auðvitað var maður hræddur“

Helgarfell
Helg­ar­fell Mynd: Samskip.is

Ekki datt tveimur starfs­mönnum Stál­smiðj­unnar í hug að vinnu­dagur þeirra einn í febr­úar 1988, ætti eftir að verða næstum því þeirra síð­asti.

Menn­irnir tveir voru að vinna um borð í Helg­ar­felli sem lá við Holta­garða. Voru þeir að leita að leka í glussarörum ofan í kjölt­anki, þegar vél­stjór­inn byrj­aði skyndi­lega að dæla sjó í tank­inn. Þar sem tank­ur­inn var ekki nema 70 senti­metra hár, var hann fljótur að fyll­ast af sjó og máttu félag­arnir hafa sig alla við til að kom­ast út úr honum á lífi. Mörðust þeir nokkuð við volkið en annar þeirra, Bjarni Stein­gríms­son, sagði í sam­tali við DV að þeir hefðu auð­vitað orðið hræddir. „Það er ekki það nota­leg­asta að vera fastur í þröngum tanki sem fyllist hratt af sjó,“ sagði hann í sam­tal­inu.

Frétt DV um málið má lesa orð­rétt hér fyrir neðan:

Tveir menn hætt komnir við vinnu í Helga­felli:

Fastir í kjölt­anki sem fyllt­ist af sjó

Við vorum að leita að leka í glussarörum ofan í kjölt­ank á Helga­fell­inu þegar vél­stjór­inn byrj­aði að dæla sjó í tank­inn. Tank­ur­inn er ekki nema 70 sentí­metra hár og hann fyllt­ist hratt af sjó. Við urðum að synda að opinu og mörð­umst allir á sverum þver­bit­unum á leið­inni. Auðvitað var maður hræddur. Það er ekki það nota­leg­asta að vera fastur í þröngum tanki sem fyllist hratt af sjó,“ seg­ist Bjarna Stein­gríms­syni, vél­virkja hjá Stál­smiðj­unni, frá óhugn­an­legri lífs­reynslu sem hann lenti í við annan mann við vinnu um borð í Helga­felli þegar skipið lá við Holta­garða. Báðir menn­irnir komust upp úr tank­inum við illan leik en þeir voru mikið marðir eftir bar­átt­una við að kom­ast upp úr þröngum tank­inum. „Ég býst ekki við því að ég fari aftur ofan í svona tank. Það verður ein­hver annar að taka að sér þau verk­efni,“ sagði Bjarni í sam­tali við DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða