Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Nýr varðturn Dalslaugar kostar borgina tugi milljóna: „Staðsetning laugarvarða var óheppileg“

Nýr turn í byggingu – Á myndinni sjást ekki rennibrautir laugarinnar. –
Nýr turn í bygg­ingu – Á mynd­inni sjást ekki renni­brautir laug­ar­innar. – Mynd: Brynjar Birgisson

Miklar fram­kvæmdir standa nú yfir í Dalslaug í Úlf­arsár­dal, nýj­ustu sund­laug Reykja­víkur, en hún opn­aði í lok árs­ins 2021 við mikla gleði sund­á­huga­manna.

Nokkuð óvenju­legt verður þó að telj­ast að svo miklar fram­kvæmdir standi yfir í svo nýrri sund­laug en þessi nýja bygg­ing verður varð­turn laug­ar­varða. „Það er verið að færa aðstöðu laug­ar­varða úr núver­andi varð­turni sem er stað­settur við hlið innilaugar út á sund­laug­ar­bakk­ann,“ sagði Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir, sam­skipta­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, við Mannlíf um málið. Hófust fram­kvæmd­irnar í apríl en seinkun varð á steypu­vinnu og eru áætluð verk­lok ekki fyrr en í sept­em­ber.

Vilja auka yfir­sýn

En af hverju var varð­turn­inn ekki byggður á sama tíma og sund­laugin?

„Upp­haf­lega var ákveðið að hafa ekki renni­brautir við þessa laug,“ sagði Eva um fram­kvæmd­irnar. „Í fram­haldi af íbúa­kosn­ingu (Hverfið Mitt) þar sem kom fram ein­lægur áhugi á að fá upp renni­brautir þá var tekin ákvörðun um að stækka sund­laug­ar­svæðið og reisa þar nýjar brautir. Við þessa breyt­ingu var ljóst að stað­setn­ing laug­ar­varða var óheppi­leg og ekki þótti full­nægj­andi að treysta ein­göngu á mynda­véla­eft­ir­lit með renni­braut­unum, því var ákveðið að byggja nýjan varð­turn við enda sund­laug­ar­innar til að auka yfir­sýn laug­ar­varða og tryggja öryggi gesta.“

Þá er áætlað að kostn­aður við bygg­ingu á turn­inum muni verða 65 millj­ónir króna að sögn Evu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða