Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Tíu ára drengur hljóp á ungling á reiðhjóli og féll í götuna – Seinna um kvöldið var hann allur

Guðmundur fór alltof snemma.
Guð­mundur fór alltof snemma.

Hinn tíu ára gamli Guð­mundur Ólafsson var algjör­lega grun­laus að þessi síð­sum­ar­dagur, 25. ágúst, væri hans síð­asti í þessu jarð­lífi. Hann hafði verið á göngu í miðbæ Reykja­víkur er hann rakst á dreng sem var vanur að leggja hann í ein­elti með hrekkjum. Hljóp hann því undan honum út Veltu­sundið en þegar hann kom að horn­inu á Aust­ur­stræti gerð­ist nokkuð sem aldrei hafði gerst áður á Íslandi þó það hafi ekki komið í ljós fyrr en seinna um kvöldið. Guð­mundur rakst af fullum þunga á ung­lings­pilt sem kom hjólandi eftir Aust­ur­stræti. Duttu þeir báðir við árekst­ur­inn en Guð­mundur skalla aftur fyrir sig á göt­una. Eftir að hafa jafnað sig í nær­liggj­andi verslun og fengið vatns­glas fór sá stutti heim á leið og virt­ist lítið vera að honum. Klukkan 23 var hann hins vegar allur. Slysið gerð­ist árið 1915 og var fyrsta banaslysið í umferð í Íslands­sög­unni.

Vísir sagði svo frá þessum hryggi­lega atburði:

Sorglegt slys vildi til hér í bænum í gærkveldi. 

Tíu ára gam­all drengur, Guð­mundur Ólafsson frá Bald­urs­götu 1, hljóp út Veltu­sund undan öðrum dreng, sem ætl­aði að hrekkja hann. En á horn­inu á Aust­ur­stræti rakst hann á pilt, sem kom á hjóli eftir Aust­ur­stræti. Pilt­ur­inn á hjól­inu hafði verið á hægri ferð, en hrað­inn á Guðm. var svo mik­ill, að við árekst­ur­inn duttu þeir báðir, og skall Guð­mundur aftur á bak á göt­una. Pilt­ur­inn, sem á hjól­inu var, studdi nú Guðmund inn í búð Ragnars Levis, og var hann lát­inn fara þar upp á loft til að jafna sig. Náði hann sér nú brátt svo, að hann vildi fara heim til sín. Bar þá orðið ekk­ert á því, að neitt alvar­legt væri á ferðum. — Hann hafði ekki mist með­vit­und­ina og aðeins einu sinni haft orð á því, að sér væri að verða ilt, og búist við því, að kasta upp, en það leið frá, er hann fékk vatn að drekka. Fór hann nú heim til sín og annar lít­ill drengur með honum. 

Þegar heim var komið, var Sæm. pró­fessor Bjarn­héð­ins­son sóttur og var honum sagt, að liðið hefði yfir dreng­inn og að hann hefði kastað upp. Af því réði Sæm. það, að um heila­hrist­ing væri að ræða, en í litlum stíl þó, því að dreng­ur­inn var all­hress að sjá, tal­aði eðli­lega og kendi sér eig­in­lega einskis meins. Áleit Sæmundur því, að engin hætta væri á ferðum, en ráð­lagði bakstra við höf­uðið. Þetta var um kl. 8 í gærkveldi, en kl. II var dreng­ur­inn dáinn. Vér höfum átt tal við próf. Sæmund og telur hann lík­leg­ast, að sprungið hafi æð í höfð­inu og blætt í heil­ann. Óhæti mun að full­yrða að eng­inn eigi sök á slysi þessu.

Dreng­ur­inn full­yrti sjálfur að pilt­ur­inn á hjól­inu hefði enga sök átt á því, og um það ber öllum sjón­ar­vottum saman. — Helst er ávíttur dreng­ur­inn sem elti Guðmund sál­uga, og sagt að hann hafi lagt það í vana sinn að hrekkja hann, hvar sem hann náði til hans. En þótt slíkt sé Ijótt, þá er þó ekki rétt að gefa honum sök á slysi þessu.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 7. októ­ber 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða