Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Sjúkratrygging hættir niðurgreiðslu á vinsælu lyfi – Strangari skilyrði fyrir annað lyf

Ekki gott ástand,
Ekki gott ástand,

Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur hætt greiðslu­þátt­töku á syk­ur­sýkis­lyf­inu Saxenda. Lyfið er afar vin­sælt enda virkar það vel gegn offitu.

Samkvæmt frétt á vef Lyfja­stofn­unar hefur Sjúkra­trygg­ingar Íslands ákveðið að hætta að greiða niður syk­ur­sýkis­lyfið Saxenda en það er oft notað gegn offitu, frá og með 1. nóv­em­ber. Ákvörð­unin var tekin að und­an­geng­inni end­ur­skoðun.

Segir í frétt Lyfja­stofn­unar að ákveðið hafi verið að end­ur­skoða greiðslu­þátt­töku á lyf­inu vegna nýrra upp­lýs­inga frá hinum Norð­ur­lönd­unum: „Nið­ur­staða end­ur­skoð­un­ar­innar er að ein­stak­lings­bundin greiðslu­þátt­taka verður afnumin fyrir lyfið Saxenda (líraglú­tíð) en veitt verður ein­stak­lings­bundin greiðslu­þátt­taka fyrir lyfið Wegovy (semaglú­tíð) að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum fyrir full­orðna og ung­linga.

Þrátt fyrir að skil­yrðum greiðslu­þátt­töku verði breytt hér­lendis er ekki gengið jafn langt og gert er í skil­yrðum hinna Norð­ur­land­anna. Þannig er unnt að veita ein­stak­lingum meiri mögu­leika á greiðslu­þátt­töku fyrir Wegovy hér á landi en í við­mið­un­ar­lönd­unum.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs frá heil­brigð­is­geir­anum þykja skil­yrðin sem ein­stak­lingur þarf að upp­fylla til að geta greitt niður Wegovy, mjög ströng. Annað hvort þarf ein­stak­lingur að mæl­ast í BMI mæl­ingu, 45 kg/m2 eða hærra sam­kvæmt mæl­ingu gerð af heil­brigð­is­starfs­manni í sömu viku og umsókn er send Sjúkra­trygg­ingum og vera með lífsógn­andi þyngd­ar­tengdan fylgi­kvilla, sem ekki hefur tek­ist að með­höndla með lyfjum í almennri greiðslu­þátt­töku, þrátt fyrir að mis­mun­andi teg­undir hafa verið reyndar í sex mán­uði eða lengur. Um getur verið að ræða t.d. alvar­legan háþrýst­ing, syk­ur­sýki II með lang­tíma­sykri (HbA1c) > 48mmol/mol, kæfisvefn (meðal svæs­inn eða svæs­inn). Eða þá að mæl­ast 35 kg/m2 eða hærra í BMI mæl­ingu og þjást af mjög alvar­legum lífsógn­andi und­ir­liggj­andi sjúk­dómi sem krefj­ist með­höndl­unar, svo sem að sjúk­lingur sé á leið í líf­færa­skipti og þarf að létt­ast fyrir aðgerð, er með alvar­legan hjarta­sjúk­dóm, eins og hjarta­bilun eða stað­festan kransæða­sjúk­dóm með þræð­ingu, alvar­legan lifrar- eða nýrna­sjúk­dóm, alvar­legan geð­sjúk­dóm, þar sem lang­tíma­með­ferð með geð­rofslyfjum hefur valdið mark­tækri þyngd­ar­aukn­ingu (>10 kg) eða vanöndun vegna offitu. 

Saxenda kostar án greiðslu­þátt­töku Sjúkra­trygg­ingar Íslands rúmar 46.000 krónur en Wegovy um 27.000 krónur. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Sjúkra­trygg­inga var ein af ástæðum þess að ákveðið var að hætta að greiða niður Saxenda, sú að lyfin væru með svip­aða virkni en Saxenda tölu­vert dýr­ari.

Offita á Íslandi hefur farið hratt vax­andi und­an­farna ára­tugi en árið 2002 var um 12 pró­sent þjóð­ar­innar í ofþyngd en árið 2017 var um 27 pró­sent þjóð­ar­innar í yfir­þyngd. Þá voru yfir 3.000 börn hér á landi með offitu árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða