Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Reynir segir lygina notaða sem áróðursvopn: „Bóluefnið gegn lygum og rangindum eru staðreyndir“

Jarð­skjálfta­fræð­ing­ur­inn Reynir Böðv­ars­son fór fimum fingrum sínum um lykla­borðið og útkoman er grein sem ber yfir­skrift­ina: Hvar var endar þetta? 

Hann byrjar á þessum nótum:

Donald Trump, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna

„Donald Trump notar lyg­ina óspart sem áróð­ursvopn og virð­ist nán­ast ónæmur fyrir því þegar hún er rekin ofan í hann, hann end­ur­tekur hana bara með enn meiri ákafa við húrra­hróp fylgj­enda. Enginn stjórn­mála­maður hefur nokk­urn­tíman kom­ist með tærnar þar sem hann hefur hæl­ana hvað varðar óheið­ar­leika og ósvífni í mál­fluttn­ingi sínum. Hann er ein­fald­lega algjört við­undur sem eng­inn hefði trúað því fyr­ir­fram að svona fígúra ætti mögu­leika á að ná kjöri í hæsta emb­ætti í lýð­ræð­is­ríki, hvað þá ríki sem oft hefur verið talið fyr­ir­mynd ann­ara vest­rænna ríkja og á rætur í upp­lýs­ing­unni.“

Bjarni Bene­dikts­son

Hann bætir því við að „það ætti öllum sem fylgj­ast með að vera ljóst að eitt­hvað alvar­legt er að þeim lýð­ræð­is­ferlum sem vaska fram leið­toga eins og Donald Trump, Jair Bol­son­aro, Boris Johnson, Viktor Orbán, Giorgia Meloni, Bjarna Bene­dikts­son og marga fleiri og það bara nú á síð­ustu og verstu tímum. Ég held að eng­inn þess­ara leið­toga kæmust til valda án lyg­innar þótt fáir hafi hagað sér eins rudda­lega og verið eins ósvíf­inir og Donald Trump. Hann lýgur að mestu sjálfur en hin eru ekki alveg eins óför­skömmuð sjálf en öll hafa þau sér til aðstoðar stofn­ana­vædda lyga­sögu sem kölluð er Nýfrjáls­hyggja.“

Milton Friedman.

Reynir segir að „helstu alþjóð­legu stofn­anir á fjár­mála­sviði í heim­inum, Alþjóða­bank­inn, WB, og Alþjóða gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn, IMF, til dæmis, hafa keypt þessa lyga­sögu Sík­a­góskól­ans sem Milton Friedman básúner­aði út og sem Ronald Reagan og Margaret Thatcher gleyptu hráa og lugu því að kjós­endum sínum að ef þau kæmust til valda yrðu allir rík­ari. Þau full­yrtu að sam­eig­in­legu eignir þjóð­ar­innar, svo sem skólar og sjúkra­hús, vegir og járn­brautir væri best að afhenda auð­vald­inu til að eiga og reka. Gott væri að hafa ofur­ríkt fólk sem græddi á þessu, lækka síðan skatta á þá rík­ustu, því það mundi leka síðan svo­lítið frá þeim til okkar hinna svipað og brauð­molar detta af borð­inu til fugl­ana þegar við borðum úti í garði á sumrin.“

Margaret Thatcher.

Reynir segir brauð­mola­kenn­ing­una vera hluta af „lýgi nýfrjáls­hyggj­unar sem fór síðan sem far­sótt um allan heim með smit­stuðul sem virð­ist hærri en nokkur önnur þekkt far­sótt. Nýfrjáls­hyggjan er hættu­leg­asta far­sótt sem herjað hefur á mann­kyn, hefur staðið yfir í bráðum hálfa öld og það er aug­ljós­lega langt í land með að ná hópónæmi ef það þá verður nokk­urn­tíman hægt. Bólu­efnið gegn lygum og rang­indum eru stað­reyndir og opin umræða en spurn­ingin er hvernig bólu­setn­ingin fer fram þar sem smitið fer um þjóð­fé­lög og stjórn­mála­flokka en ekki ein­stak­linga. Það er ekki hægt að sprauta því inn í þjóð­ar­lík­amann eða stjórn­mála­flokk­inn á sama hátt og hægt er með bólu­efni gegn vírus­sjúk­dómum í mönnum.“

Reynir bendir á að „Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, sam­ræmdi aðgerðir með sótt­varn­ar­læknum um allan heim í bar­átt­unni við Covid og er sá far­aldur nú í böndum og er ekki lengur þjóð­fé­lögum hættu­legur. Alþjóða­bank­inn og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn eru líka und­ir­stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna, UN, en þar hefur engin sam­ræmd aðgerð­ar­á­ætlun gegn þess­ari far­sótt verið smíðuð, þvert á móti. Þar á bæ er far­sótt­inn, þ.e.a.s. Nýfrjáls­hyggj­unni bara við­haldið og henni dreift eins og engin væri morg­un­dag­ur­inn og með hjálp hag­fræð­inga og stjórn­mála­fræð­inga útum allan heim sem allir eru meira og minna mennt­aðir eins og guð­fræð­ingar í guð­fræði­deild þar sem trú­ar­brögðin eru far­sóttin sjálf þ.e.a.s. Nýfrjáls­hyggjan.“

Hann segir að við „þekkjum sem­sagt sjálfa veiruna, sem er lýgin og rang­indi, við þekkjum bólu­efnið, sem eru stað­reyndir og opin umræða, en við vitum ekki hvernig við eigum að bólu­setja þjóð­fé­lagið sem er hel­sjúkt af far­aldr­inum. Hvernig á að gera sjúk­ling­inn með­vit­aðan um sjúk­dóm­inn þegar flestir ein­stak­lingar í þjóð­fé­lag­inu eru and­stæð­ingar bólu­setn­ingar gagn­vart ákkúrat þessum sjúk­dómi. Fullyrða jafn­vel að bólu­efnið sé hættu­legra en sjálfur sjúk­dóm­ur­inn, sann­leik­ur­inn hættu­legri lýg­inni. Hvernig á að fá almennan skiln­ing í þjóð­fé­lag­inu á ástand­inu þegar alþjóða­stofn­anir og helstu “sér­fræð­ingar” þjóð­anna vinna mark­visst gegn því og full­yrða jafn­vel að far­ald­ur­inn sé ekki til staðar og sé bara hug­ar­burður? Ofan á allt saman er með­virknin í þjóð­fé­lag­inu svo útbreidd að erfitt er að sjá hvaða brögðum eigi að beita til þess að koma okkur úr þess­ari sjálf­heldu sem við sem þjóð­fé­lög aug­ljós­lega erum komin í. Hvar endar þetta?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Faðmlög á göngum þingsins og hvatning milli þingmanna sjást sjaldan utan þess, sagði Diljá Mist Einarsdóttir í ræðu sinni.
Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða