Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Ellefu ára stúlka lést eftir að hafa verið send heim af bráðamóttöku: „Færði okkur svo mikla ást“

Ellefu ára stúlka í Warwick í Englandi, sem leit­aði á sjúkra­hús vegna mik­illa inn­an­kvala fannst látin í rúmi sínu morg­unin eftir. Hún hafði verið send heim af spít­al­anum og sagt að hún væri með hægð­ar­tregðu.

For­eldrar Annabel Greenhalgh krefj­ast nú svara eftir að skóla­stúlkan var útskrifuð af Warwick-sjúkra­hús­inu þar sem læknar á bráða­mót­tök­unni sögðu að hún væri með hægða­tregðu. Morg­un­inn eftir, þann 14. októ­ber 2022, fann faðir hennar Craig hana að því er virt­ist með­vit­unda­lausa á heim­ili þeirra í Warwick og hringdi í neyð­ar­lín­una. Þrátt fyrir til­raunir sjúkra­liða til að end­ur­lífga hana var Annabel úrskurðuð látin á vett­vangi.

Hin ást­kæra dóttir hjón­anna upp­lifði mikla kvið­verki frá 2017 til 2021, sem krafð­ist sjúkra­hús­með­ferðar í nokkur skipti. Rannsókn á dauða Annabel hefst föstu­dag­inn 14. júní í Coventry Coroners’ Court.

Hrygg­brotnir for­eldrar hennar, Craig og Josie sögðu að þau hafi verið skilin eftir með „gap­andi gat“ í lífi sínu. Josie, 45 ára, sagði: „Annabel var ótrú­legt barn og var elskuð af öllum sem kynnt­ust henni. Hún var blíð, ein­stak­lega skörp, skap­andi, skemmti­leg og alltaf sam­þykkt af öllum.

„Hún elskaði tón­list­ina sína algjör­lega, tísk­una sína, list­ina sína, vini sína og ást­kæra kött­inn sinn Reuben. Hún var okkar mesta gjöf og færði okkur svo mikla ást, gleði og ham­ingju í líf okkar. Síðan við misstum hana hefur stór hluti af okkar dögum verið fylltur af van­líðan, tóm­leika og sorg.“

Hin ell­efu ára Annabel hóf nýlega nám í Alcester Grammar-skól­anum og var sögð „mjög elskuð“ af kenn­urum og nem­endum. For­eldrar hennar von­ast til að rann­sóknin á dauða hennar muni gefa upp­lýs­ingar um með­ferð hennar áður en hún lést. Craig sagði: „Þegar okkur var sagt að við gætum tekið Annabel heim af sjúkra­hús­inu, treystum við því að það væri ekk­ert alvar­legt í gangi.“

„Að vakna morg­un­inn eftir og kom­ast að því að hún svar­ari ekki var alveg hrika­legt og eitt­hvað sem við eigum enn erfitt með að skilja. Á hverjum degi síðan þá höfum við velt því fyrir okkur hvort meira hefði verið hægt að gera til að bjarga litlu stelp­unni okkar. Hún var okkar eina barn og enn er svo mörgum spurn­ingum ósvarað um hvað kom fyrir hana. Við vitum að það verður ótrú­lega erfitt að heyra allt aftur í rann­sókn­inni, en það er eitt­hvað sem við þurfum að gera til að heiðra dóttur okkar og fá svörin sem við höfum leitað í meira en 18 mán­uði.“

Bætti hann við:

„Frá því að við misstum Annabel hefur verið gap­andi gat í lífi okkar og við myndum ekki óska ​​neinum þess sem við höfum þjáðst. Hún var nýbyrjuð á mið­stigi og átti allt lífið framundan. Orð geta ekki lýst því hversu mikið við söknum hennar.“

Craig og Josie hafa síðan verið í sam­bandi við lög­fræð­inga hjá Irwin Mitchell til að rann­saka harm­leik­inn frekar. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar, Emma Rush, sagði: „Josie og Craig eru skilj­an­lega nið­ur­brotin yfir að missa litlu stúlk­una sína svo skyndi­lega og á hörmu­legan hátt. Þau eru enn með fjölda spurn­inga um það hvað hafi komið fyrir hana. Þó ekk­ert geti end­ur­lífgað Annabel, þá er rann­sóknin stór áfangi í því að geta veitt fjöl­skyldu hennar þau svör sem þau eiga skilið. Ef í ljós kemur að mis­tök hafi verið gerð í lækn­is­með­ferð­inni á henni á meðan á rann­sókn stendur er mik­il­vægt að draga lær­dóm af því til að bæta öryggi sjúk­linga.“

Mirror sagði frá harm­leiknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu