Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Skilur ekki kynlífsmúffubannið í íslenskum fangelsum: „Fangaverðir eru í hönskum“

Það vantar smokka og kynlífsmúffur í íslensk fangelsi – Myndin er samsett
Það vantar smokka og kyn­lífs­múffur í íslensk fang­elsi – Myndin er sam­sett

Íslenska ríkið virð­ist mis­muna föngum á land­inu eftir kyni. Þannig er mál með vexti að karlfangar mega ekki vera með kyn­lífs­múffur í klef­unum sínum meðan konur mega hafa ílöng hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins í sínum klefum. „Ég get stað­fest að þarna hall­ar á karl­ana,“ sagði Hall­dór Val­ur Páls­son, for­stöðu­maður fang­els­anna að Sogni, Hólms­heiði og á Litla-Hrauni í sam­tali við mbl.is.

Þá sagði Ómar Vignir Helgason, varð­stjóri á Litla-Hrauni, ástæð­una vera smygl­hættu og mögu­leg leyni­hólf sem fylgja kyn­lífs­múffum og að starfs­menn hafi lít­inn áhuga á að leita í slíku. Mannlíf hafði sam­band við Guðmund Inga Þór­ods­son, for­mann Afstöðu – félags fanga á Íslandi, til að spyrja hann nánar út í þessi mál.

„Okkar afstaða er sú að fang­elsin ættu aldrei að mis­muna og skiljum ekki alveg rökin. En fanga­verðir eru í hönskum við leitir, hægt er að setja hluti í gegn­um­lýs­ingu og almennt eru fangar snyrti­legir og passa upp á dótið sitt, þess vegna á ég erfitt með þessi rök,“ sagði Guð­mundur um málið en bannið á við um öll fang­elsi þar sem karlar afplána. „Fangar eru auð­vitað bara venju­legt fólk og þeir eru mis­jafnir eins og þeir eru margir. Sumir hafa áhuga á klámi og hjálp­ar­tækjum en aðrir bara alls ekki, þannig að ég held að þetta sé ekk­ert öðru­vísi en almennt í sam­fé­lagi frjálsra manna.“

„Konur eru oft mjög fáar í afplánun og jafn­vel stundum bara ein kona í afplánun og því kannski þurfa þær meira á þessu að halda,“ sagði for­mað­ur­inn um þær konur sitja í fang­elsi á Íslandi. „Strák­arnir hafa þó alla­vega hvorn annan. Það þarf eng­inn að vera það barna­legur að halda að kyn­líf sé ekki stundað í fang­elsum almennt og því er afar mik­il­vægt að fang­els­is­yf­ir­völd taki sig á málum eins og skaða­minnkun og sjái til þess að til staðar séu smokkar á þeim stöðum þar sem auð­velt er að nálg­ast þá án þess að aðrir sjái til og passi upp á mögu­leika fólk þegar kemur að slíkum hjálp­ar­tækjum.

Við höfum beitt okkur í þessum málum og fyrir nokkrum árum var þetta ekki vanda­mál og allir fengu það sem þeir þurftu eða vildu prófa. Ég sé nú að þeim mögu­leikum hefur eitt­hvað fækkað und­an­farið,“ og sagði Guð­mundur að fangar mættu þó hafa klám inn í eigin klefum en tekur þó fram að allt klám með ofbeldi sé bannað og það sem er skil­greint sem afbrigði­legt.

„Fangar hafa mátt vera með hefð­bundið klám­efni og hafa flestir verið með það á USB-kubbum og þá getað horft á það í sjón­varp­inu sínu. Á árum áður voru fangar með þetta í tíma­ritum og dvd-myndum en það held ég að sé liðin tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

„Spennið beltin.“
Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Samkvæmt ákærunni veitti eldri maðurinn þeim yngri munnmök í barnalaug Laugardalslaugar.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni