Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Ingólfur um Ísland og ESB: „Þannig virðist minnimáttarkenndin hafa tekið við af oflátungshættinum“

Ingólfur Sverrisson.
Ingólfur Sverr­is­son.

Ingólfur Sverr­is­son, eft­ir­launa­þegi og fyrrum for­stöðu­maður sam­taka fyr­ir­tækja í málm- og skipa­iðn­aði, segir í grein að „ekki verður séð að minni­mátt­ar­kennd sé hót­inu betri en oflát­ungs­háttur. Síðustu vikur og mán­uði hafa birst greinar eftir Hjört J. Guð­munds­son þar sem hann útmálar hvað Ísland yrði lítið og pervisið ef við gengum að fullu inn í ESB og færðum okkur af göngum og náð­húsum inn á fund­ina þar sem mál eru rædd og ákvarð­anir teknar. Hann gengur út frá því að þangað ættum við lítið erindi vegna smæðar þjóð­ar­innar og ein­stæð­ings­skapar.“

Bætir við:

„Yrðum jafnan borin atkvæðum í hverju máli sem við hefðum áhuga á að berj­ast fyrir enda skeyttu stóru þjóð­irnar innan ESB ekk­ert um hags­muni fámenn­ari þjóð­anna. Allt fyrir fram von­laust og svart og betra að láta lítið á sér bera og fara með löndum jafn­vel þótt miklir hags­munir þjóð­ar­innar séu í húfi.“

Hann segir að „ef við hefðum nálg­ast bar­átt­una fyrir útfærslu land­helg­innar með þessu hug­ar­fari og þess­ari „reisn” bendir allt til að lít­ill árangur hefði náðst í því mikla hags­muna­máli. Sem betur fer voru rökin fyrir útfærsl­unni sett á þeim tíma upp skipu­lega, þau vand­lega kynnt á alþjóða­vett­vangi enda þótt ein­hverjir hefðu (eins og nú) litla trú á að við gætum haft sigur á móti vilja og hags­munum mun stærri og vold­ugri þjóða. En með vel upp­byggðum rökum og kröft­ugri mála­fylgju tókst að fá við­ur­kenn­ingu á land­helg­inni enda þótt oft hafi blásið á móti og stríðs­á­stand ríkj­andi á tíma­bilum. Þá var ekki látið nægja að mæla hvað aðrar þjóðir væru fjöl­mennar, við fámenn og gef­ist upp fyrir fram. Nei, trúin á mál­stað­inn og sam­staða þjóð­ar­innar skóp sigur. Ef Íslend­ingar hefðu hins vegar ekki haft þessa sann­fær­ingu fyrir eigin mál­stað, hefðum við ekki getað vænst árang­urs í þessu lífs­hags­muna­máli þjóð­ar­innar. Mig grunar að þáver­andi for­ystu­mönnum þjóð­ar­innar liði ekki vel ef þeir kynnt­ust þeim mál­flutn­ingi sem nú lætur hátt og bygg­ist á því að við séum bæði fá og smá og megum okkur lít­ils í alþjóða sam­starfi. Nær að halda að þeir rífi nú hár sitt í Sum­ar­land­inu vegna slíks úti­boru­háttar.“

Ingólfur segir að „mörg dæmi eru þess innan Evr­ópu­sam­starfs­ins að minni þjóð­irnar hafa barist fyrir hags­muna­málum almenn­ings og úr hafa orðið reglur sem nú þykja sjálf­sagður hluti rétt­inda fólks­ins á svæð­inu. En hitt hefur löngum verið siður margra að tína aðeins úr hillum þau mál­efni sem ekki tókst að koma í gegn og nýta örlög þeirra til að sýna fram á að ekk­ert þýði fyrir þá minni að haf­ast að. Allt fyrir fram von­laust. Hins vegar hafa þessir sömu svo­nefndu sér­fræð­ingar forð­ast að nefna í skrifum sínum og mál­flutn­ingi þau mál­efni sem náðst hafa fram og stuðla að bættum hag venju­legs fólks. Þegja um allt því­líkt enda þjóna slík upp­lýs­inga­skrif ekki nei­kvæðum mál­flutn­ingi um stefnu og störf ESB. Þótt minni­mátt­ar­kennd af þessum toga sé næsta hvim­leið er þó engu betra að ofmeta eigin getu og færni. Það getur á sama hátt virkað hjá­rænu­legt eins og þegar við héldum um síð­ustu alda­mót að Íslend­ingar byggju yfir sjald­gæfum hæfi­leikum um með­ferð fjár­muna. Því jafn­vel haldið fram af ábyrgum for­ystu­mönnum þjóð­ar­innar að þarna hefði verið um að ræða arf­leifð frá tímum vík­inga sem hefði þró­ast hér með yfir­skil­vit­legum hætti við ysta haf allri heims­byggð­inni til heilla. Margir létu glepjast af slíku gaspri en svo sprakk blaðran með skelfi­leg um afleið­ingum.“

Segir og spyr að lokum:

„Athygli vekur að margir sem mærðu þetta „fjár­mála­æv­in­týri” Íslands fylla nú hóp þeirra sem and­æfa að við tökum sem sjálf­stæð þjóð fullan þátt ESB-sam­starf­inu. Þannig virð­ist minni­mátt­ar­kenndin hafa tekið við af oflát­ungs­hætt­inum og heilli þjóð tek­ist að mála sig út í horn. Hímir þar nú þögul og hljóð og treystir sér ekki einu sinni til að ræða hvort upp­taka evru og full aðild að ESB gæti verið far­sælt skref fyrir land og þjóð. Getur staðan orðið öllu snaut­legri?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða