Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Móðirin með drenginn sem lögreglan lýsir eftir: „Faðir barnsins hefur stöðu sakbornings“

Lögreglan
Lög­reglan Mynd: Lára Garðarsdóttir

Helga Sif Andr­és­dóttir segir lög­regl­una nú lýsa eftir syni hennar, þrátt fyrir að hafa verið upp­lýst um að dreng­ur­inn sé hjá móður sinni.

Fyrr í dag lýsti lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir 11 ára dreng og birti af honum ljós­myndir. Móðir drengs­ins, Helga Sif Andr­és­dóttir, skrif­aði Facebook-færslu rétt í þessu þar sem hún segir að dreng­ur­inn hennar sé hjá sér og að lög­reglan og barna­vernd viti af því. Segir hún föð­ur­inn með stöðu sak­born­ing í ofbeld­is­máli gegn drengnum og hefur Mannlíf undir höndum gögn sem sýna fram á það.

Hatræm forræðisdeila

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs snýst málið um harða for­ræð­is­bar­áttu for­eldr­anna sem eru bæði með for­sjá yfir drengnum en hann er með lög­heim­ili hjá föður sínum. Hann hafði verið hjá föður sínum frá 2. júlí 2022, eftir að hafa fengið barnið afhent með aðfar­ar­gerð á Barna­spít­ala Hrings­ins, en hefur nú dvalið hjá móð­ur­inn frá því að systk­ini hans sóttu hann í skól­ann á leið í leik­fimi í nóv­em­ber í fyrra, en móð­irin segir að ástæðan hafi verið mar­blettir sem sáust á drengnum stuttu áður.

Þann 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kvað Umdæm­is­ráð Barna­verndar Reykja­víkur þann úrskurð að dreng­ur­inn skyldi vistaður á heim­ili á vegum Barna­verndar Reykja­víkur í tvo mán­uði, „til þess að raun­hæft sé að koma drengnum til full­nægj­andi með­ferðar hjá læknum og kort­leggja stuðn­ings­þörf hans. Auk þess er tekið undir nauð­syn þess að kanna betur ásak­anir um ofbeldi í garð drengs­ins,“ eins og það er orðað í úrskurð­inum.

Mannlíf hefur undir höndum afstöðu rík­is­sak­sókn­ara til kæru á hendur föður drengs­ins en móð­irin sakar hann um ofbeldi gegn syni þeirra. Lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi hafði tekið þá ákvörðun að hætta rann­sókn á meintu ofbeldi föð­urs­ins en nið­ur­staða rík­is­sak­sókn­ara, að ígrund­uðu máli, var að halda rann­sókn á mál­inu áfram og felldi því út ákvörðun lög­reglu­stjór­ans.

Búin að kæra Barnavernd Reykjavíkur

Segir móð­irin í Facebook-færsl­unni að barna­vernd hafi aldrei haft áhyggjur af börnum sínum í hennar umsjá, fyrr en Barna­vernd Reykja­víkur tók við málið þeirra í vor. „Það að ég hætti að mæta með dreng­inn í lyfja­gjöf á Barna­spít­al­anum, er ástæðan fyrir þess­ari leit,“ skrif­aði Helga Sif og bætti við: „Ég hef neitað að gefa barna­vernd upp nafnið á lækn­inum sem fylgir honum eftir, því ég vil ekki að gerð verði önnur aðför gegn barn­inu á heil­brigð­is­stofnun.“ Þá segir hún föður drengs­ins vera með stöðu sak­born­ings. „Faðir barns­ins hefur stöðu sak­born­ings í tveimur saka­málum, fyrir ofbeldi gegn mér og drengnum. Barna­vernd leysir þessa stöðu með því að vista dreng­inn á vist­heim­ili í “allt að” tvo mán­uði. Sem sagt, barna­vernd getur þess vegna afhent föður barnið sam­stundis, eftir að búið er að hand­sama hann aftur.“

Segir Helga að dreng­ur­inn hennar eigi „mögu­lega íslands­met í að hafa orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hendi íslenska rík­is­ins.“

Í lok færsl­unnar segir hún lög­mann sinn hafa sent inn kæru í dag á hendur starfs­mönnum Barna­verndar Reykja­víkur, meðal ann­ars fyrir skjala­fals.

Færslan

Færsluna má lesa í heild hér:

„Lög­reglan er að lýsa eftir barn­inu mínu, sem barna­vernd og lög­regla eru upp­lýst um að er hjá mér. Barna­vernd hefur aldrei haft áhyggjur af börn­unum mínum í minni umsjá, fyrr en Barna­vernd Reykja­víkur tók við mál­inu í vor. Það að ég hætti að mæta með dreng­inn í lyfja­gjöf á Barna­spít­al­anum, er ástæðan fyrir þess­ari leit. Ég hef neitað að gefa barna­vernd upp nafnið á lækn­inum sem fylgir honum eftir, því ég vil ekki að gerð verði önnur aðför gegn barn­inu á heil­brigð­is­stofnun. Faðir barns­ins hefur stöðu sak­born­ings í tveimur saka­málum, fyrir ofbeldi gegn mér og drengnum. Barna­vernd leysir þessa stöðu með því að vista dreng­inn á vist­heim­ili í “allt að” tvo mán­uði. Sem sagt, barna­vernd getur þess vegna afhent föður barnið sam­stundis, eftir að búið er að hand­sama hann aftur. Á meðan virð­ist barna­vernd ekki hafa neinar áhyggjur af dóttur minni sem er alfarið hjá mér og með topp­mæt­ingu og topp­frammi­stöðu í Ásgarðs­skóla, sem fer fram á net­inu. Ég held að barnið mitt eigi mögu­lega íslands­met í að hafa orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hendi íslenska rík­is­ins. Lögmaður minn sendi inn kæru til lög­reglu í dag, á hendur starfs­mönnum Barna­verndar Reykja­víkur, fyrir skjala­fals meðal ann­ars. Ráð­gjaf­arnir sem eru með málið mitt eru tvær konur, nákvæm­lega sömu kon­urnar og stóðu að aðför­inni heima hjá Eddu Björk fyrir stuttu. Auk þeirra eru fleiri starfs­menn barna­verndar kærðir fyrir brot á hegn­ing­ar­lögum í mála­vinnsl­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti