Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Stór hópur Bandaríkjamanna festist á hálendinu í aftakaveðri: „Við höfum aldrei lent i öðru eins“

Björgunarsveitarbíll frá Dalvík. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Björg­un­ar­sveit­ar­bíll frá Dalvík. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: https://eidurjul.weebly.com/bjoumlrgunarsveit.html

Hátt í 40 manna hópur banda­ríkja­manna lenti í hremm­ingum uppi á hálendi þegar verðrið breytt­ist á örskots stundu. Þrjú börn voru í hópnum, þar af eitt 19 mán­aða.

Það var í nóv­em­ber árið 1991 að 35 manna hópur Banda­ríkja­manna lagði í ferð upp á hálendi Íslands á 13 bílum, en til­gang­ur­inn var að læra að keyra í snjó. Á örskots­stundu hafi veðrið breyst og fyrr en varir sátu bíl­arnir fastir uppi á hálendi. Þrír Íslend­ingar voru í hópnum og auð­vitað sá eini sem var almenni­lega búinn undir óveður og var með fjar­skipta­tæki. Það voru svo þeir sem keyrðu í 30 kíló­metra áleiðis til Hvera­valla. Þegar á Hvera­velli var komið var beðið um aðstoð björg­un­ar­sveita og end­aði ævin­týrið far­sæl­lega en Banda­ríkja­mönn­unum var skilj­an­lega brugðið, enda börn með í för.

Hér má sjá frétt DV um málið á sínum tíma:

35 Banda­ríkja­menn sátu fastir í aftaka­veðri á hálend­inu:

Við höfum aldrei lent í öðru eins

Við höfum aldrei lent i öðru eins. Þessi ferð var farin til að æfa bíl­stjór­ana í að aka í snjó og þaö má segja að þeir hafi heldur betur fengið æfing­una. Ég og konan mín erum búin að vera á Íslandí síðan 1989 og þekkjum orðið til í sam­bandi við veðrið hér. Okkur óraði þó ekki fyrir að svona fljótt skip­að­ist veður í lofti. Við erum mjög ham­ingju­söm að vera komin öll heil til byggða, ekki síst þar sem 19 mán­aða barn okkar var með í för. Það fór vel um það í ferð­inni og því varð ekki meint af ósköp­unum,“ sagði James Haywood, einn Banda­ríkja­mann­anna er lögðu á hálendið, við kom­una að Geysi undir mið­nætti í gær­kvöld.

Þrjátíu og fimm manna hópur af Kefla­vík­ur­flug­velli, þar af þrjú börn, lenti í miklum vand­ræðum á hálend­inu um helg­ina. Lagði hóp­ur­inn upp á 13 bílum frá Hvera­gerði á laug­ar­dags­morgun, áleiðis til Hvera­valla. Seinna um kvöldið var komið versta veður og um ell­efu­leytið kol­fest­ist hóp­ur­inn við Grímslæk. Þrir Íslend­ingar á jeppa voru með í ferð­inni en það var eini bíll­inn með sem var almenni­lega búinn og með fjar­skipta­búnað.

Afráðið var að tvær konur kæmu yfir í jepp­ann með börn sín og hann héldi áfram áleiðis til Hvera­valla, um 30 kíló­metra leið. Þangað náði fólkið klukkan hálf þrjú um nótt­ina. Stóri hóp­ur­inn lét hins vegar fyr­ir­ber­ast í bíl­unum við Grímslæk.

Á Hvera­völlum var beðið um aðstoð björg­un­ar­sveita en þaðan var aftur lagt af stað um tíu­leytið á sunnu­dags­morgun. Þegar komið var aftur að Grímslæk hafði tutt­ugu manna björg­un­ar­sveit, sem kölluð var út um nótt­ina, þegar komið og bjargað fólk­inu úr bíl­unum. Skilja varð marga bíla eftir þar sem þeir voru engan veg­inn búnir til akst­urs í erf­iðri færð. Komst allur hóp­ur­inn að Geysi klukkan ell­efu í gær­kvöld eftir erf­iða ferð.

„Við áttum í basli með að láta dekkin tolla undir bílnum. Hjól­barð­arnir runnu hrein­lega af felg­unum, senni­lega vegna ofhleðslu,“ sagði Garðar Eiriks­son, leið­ang­urs­stjóri björg­un­ar­sveit­ar­innar sem fór eftir fólk­inu á hálendið.

Að sögn banda­rísku leið­ang­urs­mann­anna var veð­ur­spáin ekki afleit við brott­för og þeim tjáð að lít­ill snjór væri við Hvera­velli. Því var ákveðið að leggja í hann, á mis­jafn­lega útbúnum bílum. Fólkið var að eigin sögn ágæt­lega til far­ar­innar búið.

Gunnar Ein­ars­son, björg­un­ar­sveit­inni Tryggva á Selfossi, stjórn­aði sínum mönnum úr stjóm­stöð á Selfossi. Menn úr björg­un­ar­sveit­inni Ingólfi voru kall­aði austur í gær­dag og héldu þeir tfl móts við hóp­inn í snjó­bíl.

Á leið til byggða var ákveðið að fólkið myndi halda kyrru fyrir í skála á leið­inni en horfið var frá því þar sem skál­inn var illa búinn. Hvorki var hægt að hita hann upp, vegna gas­leysis, né nauð­syn­legur björg­un­ar­bún­aður til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti