„Því miður bendir allt til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, á upplýsingafundi sem hófst klukkan eitt í dag. Þá sagði hann Grindvíkinga þurfa að búa sig undir það að þurfa að búa sig undir að búa annarsstaðar en heima hjá sér næstu mánuði.
Þá kom fram að tjónamat á heimilum sé hafið en þónokkur heimili hafa skemmst töluvert í jarðskjálftunum síðustu daga.
„Ljóst er að mikið tjón hefur orðið á fjölmörgum húsum og í samráði við eigendur voru búslóðir fluttar úr tveimur húsum, samtals fjórum íbúðum, í gær. Þar lágu innanstokksmunir undir skemmdum.“
Leitað er nú leiða til þess að tæma heimili í Grindavík en fjöldi fólks hefur enn ekki komist heim til sín til þess að nálgast nauðsynlega muni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir