Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Magnús Tumi: „Þurfum að haga orðræðu okkar þannig að við séum ekki að ýfa upp sár sem orðið hafa“

Mynd / Samsett / Facebook: Magnús Tumi
Mynd / Samsett / Facebook: Magnús Tumi

Mik­il­vægt er fyrir vís­inda­menn að vera var­kárir í tali þegar kemur að nátt­úru­ham­förum á borð við þær sem nú skekja Grinda­vík, að sögn Magnúsar Tuma Guð­munds­sonar.

Fjöldi mis­mun­andi kenn­inga og hug­mynda um mögu­legt eld­gos í eða við Grinda­vík, hafa birst í fjöl­miðlum frá upp­hafi jarð­hrær­ing­anna nærri Grinda­vík og hefur sumum þótt nóg um, enda erfitt að átta sig því hver lík­leg­asta þró­unin verður. Magnús Tumi Guð­munds­son pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði við Háskóla Íslands segir í sam­tali við Mannlíf að það sé eðli­legt að margir tjái sig um ham­farir sem slíkar en að gæta þurfi vár­kárni. „Það er nú bara þannig að það er fullt af fólki sem hefur áhuga á þessu og er kannski misná­lægt þessu og mis­mikið af gögnum sem það sér og svona. Og þannig eru þetta kannski mis­í­grund­aðar til­gátur sem settar eru fram. En það er mál­frelsi og fólk segir það sem það vill en svo má líka segja að það sé ákveðið gagn af því að það komi fram mis­mun­andi sjón­ar­mið.“

Magnús Tumi bendir þó á að best sé að hlusta á þann hóp sem ber skylda lögum sam­kvæmt að upp­lýsa almenn­ing, út frá nýj­ustu gögnum. „Fólk ætti kannski að horfa á að það er hópur, en sá hópur vinnur við þetta aðal­lega, við mæl­ingar, fylgj­ast með þessu og greina, en það er Veð­ur­stofan og fólk hér í Háskól­anum, sem vinna saman. Þar er sjón­ar­miðin sett fram í dag­legum skýrslum. Og það er svona yfir­vegað mat eftir sam­tal hóps og það er eðli máls­ins sam­kvæmt, ekki kannski mikið af alls­konar hug­myndum og hug­dettum sem kom­ast í gegnum það. Og það er sú mynd sem hefur hvað sterkasta bak­grunn­inn á grund­velli þeirra gagna sem til eru. Það er eitt. Síðan er auð­vitað fullt af fólki sem hefur áhuga á þessum hlutum en er ekki alveg þarna og setur fram alls­konar hug­myndir og við því er svo sem ekk­ert að segja en fólk setur fram hug­myndir og hefur rétt til þess. Það hefur alltaf verið þannig að þegar eitt­hvað ger­ist, þá koma fram alls­konar hug­myndir.“

Aðspurður út í þreytu Grind­vík­inga varð­andi síbreyti­legra til­gáta um mögu­legt gos, sem má sjá á sam­fé­lags­miðlum þessa dag­ana sagði Magnús Tumi: „Við berum öll skylda til að vera var­kár og yfir­veguð varð­andi svona og þá sér­stak­lega þegar þetta snertir svo marga. Það hefur alltaf verið mín nálgun að forð­ast spá­dóma en setja fram sviðs­myndir og meta hvað sé lík­legt og hvað ekki. En ekki fara að spá ein­hverju sem ég hef ekki for­sendur til að segja hvort að verði eða ekki.“ Segir Magnús Tumi að grund­vall­ar­at­riðið sé að við­brögð séu þannig að fólki sé forðað frá hættu. „Það að rýma staði og bæi er ekki aðgerð sem gerð er í hálf­kær­ingi og er í raun mjög snúið mál fyrir Almanna­varnir og við getum sagt að þetta mál núna, að það lang stærsta við það er það áfall sem fólk í Grinda­vík hefur orðið fyrir. Við getum öll séð hversu alvar­legt mál það er að þurfa að yfir­gefa heim­ili sitt í flýti og bæinn sinn og með óvissu um hvað verður, hvort hægt verði að snúa aftur. Þetta er bara mjög stórt mál og þarna þarf allt sam­fé­lagið að leggj­ast á eitt, aðstoða og vera til staðar og þetta reynir mjög á við­brags­að­ila en auð­vitað mest á fólkið í Grinda­vík og við þurfum að haga okkar orð­ræðu þannig að við séum ekki að óþörfu að ýfa upp þau sár sem orðið hafa.“ Magnús Tumi segir að á annan bóg­inn sé mik­il­vægt að mis­mun­andi raddir komi fram og það sé metið en að það sé spurn­ing á hvaða vett­vangi það eigi að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Atli Þór Fanndal Guðlaugsson gagnrýnir meirihlutann í Reykjavík fyrir að loka fyrir vatn og rafmagn hjá íbúum hjólhýsabyggðarinnar á Sævarhöfða.
Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti