
MAST Í Reykjavík
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Euro Market brauði sem Lindabakarí framleiðir vegna aðskotahlutar, nánar til tekið málbiti, sem fannst í einu brauði. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF). Brauðið er selt í einni verslun.
Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila í næstu verslun Euro Market gegn endurgreiðslu.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Framleiðandi: Lindabakarí ehf.
- Framleitt fyrir: Verslanir Euro Market
- Vöruheiti: Euro Market brauð
- Stirkanúmer: 5906681555776
- Geymsluþol: S.N. 14.08. 2026
- Dreifing: Verslanir Euro Market
Mynd: MAST
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
