Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Uggur í skólastjórnendum Húnaþings vestra – Sendu tölvupóst á starfsfólk í kjölfar fréttar Mannlífs

Hvammstangi
Hvamms­tangi

Starfs­menn grunn­skóla Húna­þings vestra á Hvamms­tanga fengu tölvu­póst frá skóla­stjór­anum eftir frétt Mannlífs af ólgu í bænum, þar sem þeir voru minntir á þagna­skyldu.

Mannlíf sagði frá því á dög­unum að mikil ólga sé á Hvamms­tanga vegna yfir­gangs og slæmrar með­ferðar starfs­manna Húna­þings vestra gagn­vart starfs­mönnum bæj­ar­ins. Í frétt­inni birt­ist við­tal við Grétu Róberts­dóttur sem sagði farir móður sinnar ekki sléttar hjá sveit­ar­fé­lag­inu. Hún hafði sótt um launa­hækkun eftir að starf hennar sem stuðn­ings­full­trúi í náms­veri stækk­aði, en þáver­andi skóla­stjóri neitað henni. Eftir að hún hafði farið í starfs­mat að eigin beiðni, hækk­uðu launin meira en hún hafði áður beðið um. Stuttu síðar hætti skóla­stjór­inn og hóf störf á fjöl­skyldu­sviði Húna­þings vestra. Í skjóli þess emb­ættis end­ur­skoð­aði hann launa­hækkun móður Grétu en á fundi sem hún var boðuð á var henni til­kynnt að samn­ingi hennar yrði breytt. Gréta sagði að breyt­ing­arnar hafi haft í för með sér umtals­verðar breyt­ingar á vinnu­tíma og launa­kjörum. Það hafi verið álit mömmu hennar og stétt­ar­fé­lags­ins Samstöðu, sem hún leit­aði til, að um upp­sögn væri að ræða. Það vildi mað­ur­inn ekki sam­þykkja, heldur hefði verið um breyt­ingu á samn­ingi að ræða, og að ef hún skrif­aði ekki undir nýjan samn­ing, væri hún búin að segja upp starfi sínu og missti þannig öll rétt­indi. Móðir Grétu stóð í stappi við sveit­ar­fé­lagið þar til hún lést úr hjarta­á­falli síð­ast­liðið sumar.

Sjá einnig: Segir móður sína illa svikna af Húna­þingi vestra: „Gjör­sam­lega sið­laust þó það sé kannski lög­legt“

Und­ir­skrift­ar­söfnun var haldin til stuðn­ings móður Grétu og komið til núver­andi skóla­stjóra grunn­skóla Húna­þings vestra, Eydísi Báru Jóhanns­dóttur og henni ætlað að koma list­anum á sveit­ar­stjórn­ina. Listinn kom hins vegar aldrei á borð Húna­þings vestra, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs en að sveit­ar­stjórn­inni hefði verið kunn­ugt um list­ann. Þess má geta að Eydís Bára er eig­in­kona odd­vita Húna­þings vestra, Þorleifs Karls Egg­erts­sonar.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fengu starf­menn grunn­skól­ans tölvu­póst, í kjöl­far frétt­ar­innar, þar sem þeir voru minntir á trún­að­ar­skyldu og þeim sagt að tjá sig ekki við um mál­efni skól­ans utan veggja hans. „Þau hafa greini­lega ekk­ert að fela,“ sagði heim­ild­ar­maður í sam­tali við Mannlíf.

Í bréf­inu er sagt að málið sé „þungt“ og það „getur tekið á marga.“ Þá er fólki boðið að tala við skóla­stjórn­endur, vilji það ræða málið betur, sem verður að telj­ast skrítið því venju­lega eru það trún­að­ar­menn vinnu­staða sem fólk leitar til í erf­iðum málum sem þessum.

Hér má sjá skjá­skot af tölvu­póst­inum.

Bréf skóla­stjór­ans
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða