Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Stjórnarmaður HSÍ segir af sér í kjölfar skandals: „Eldfim mál koma upp“

Davíð Lúther er hættur í stjórn HSÍ
Davíð Lúther er hættur í stjórn HSÍ

Davíð Lúther Sig­urðs­son, stjórn­ar­með­limur HSÍ, hefur sagt af sér stjórn­ar­mennsku vegna samn­ings HSÍ við Arnarlax en samn­ingur sá hefur hlotið mikla gagn­rýni í íslensku sam­fé­lagi síðan til­kynnt var um hann. Davíð sá einnig um mark­aðs- og kynn­ing­ar­mál sam­bands­ins. Davíð stað­festi að hann hafi sagt af sér í við­tali við Heim­ild­ina fyrr í dag. Hann segir ákvörðun um samn­ing við Arnarlax verið tekna án hans vit­undar en sá samn­ingur er ástæða þess að Davíð sagði af sér. Davíð hefur lengi verið með einn af þekk­ustu mönnum lands­ins þegar kemur að mark­aðs­málum en hann var til margra ára fram­kvæmda­stjóri aug­lýs­inga­stof­unnar Sahara.

„Ég hætti um leið og ég frétti að það hefði verið ákveðið að semja við Arnarlax,“ sagði Davíð í sam­tali við Heim­ild­ina.

Heim­ildin birti einnig tölvu­póst sem Davíð sendi á for­mann og fram­kvæmda­stjóra HSÍ þar sem hann til­kynnti afsögn sína. Hægt er að lesa bréfi Davíðs hér fyrir neðan en þar greinir hann meðal ann­ars frá því að hann sé með­limur í Icelandic Wildlife Fund en þau sam­tök hafa barist hart gegn lax­eldi Arnarlax. Ekki liggur fyrir hvort að Davíð hafi átt þátt í samn­inga­gerð við Rapyd en HSÍ hefur verið gagn­rýnt fyrir að þiggja pen­ing frá því fyr­ir­tæki.

„Sælir báðir

Vil hér til­kynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dags­ins.

Vont var að heyra þetta í gegnum Messen­ger og í sím­tölum frá fólki sem ég bæði þekki og þekki ekki neitt.

Róbert sagði mér að þetta hafi verið sam­þykkt þann 6.nóv­em­ber á fundi sem ég komst ekki á. Ég las fund­ar­gerð­ina sama dag og eina sem stóð var d. Styrkt­ar­að­ilar RG kynnti stöðu styrkt­ar­að­ila.

Ég á erfitt með að trúa því að það hafi ekki verið rök­ræður á þessum fundi vegna þessa máls og bjóst ég því við að þegar eld­fim mál koma upp að hringt er í stjórn­ar­mann sem er for­maður mark­aðs og kynn­ing­ar­mála ef hann kemst ekki á fund til að bera undir eða jafn­vel að segja að minnsta kosti frá því að þetta hafi verið sam­þykkt þar sem þetta klár­lega fellur undir mark­aðs og kynn­ing­ar­mál. Ég hefði þá getað sagt mig úr stjórn þann 6.nóv­em­ber. Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera sam­kvæmur sjàlfum mér, mót­mæli àfram lax­eldi í sjó og styð og styrki IWF.

Það má taka mig út af vefnum svo hætt verði að hafa sam­band við mig útaf þessu máli.  Gangi ykkur sem allra best og áfram hand­bolti.

Bestu kveðjur Davíð Lúther“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti