Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Sara Páls dáleiddi Arnór í hlaðvarpsþætti: „Komst í ástand sem má helst líkja við draum“

Sara Páls
Sara Páls

Alkastið heldur áfram inn­reið sinni á hljóð­varps­mark­að­inn. Að þessu sinni sett­ust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleið­ar­anum og orku­heil­ar­anum Söru Páls­dóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í við­tal hjá Gunnari því að á tímum Þvotta­húss­ins mætti hún tvisvar í við­tal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þessu sinni átti að taka örlítið annan pól í hæð­ina og sjá hvort hægt væri að dáleiða Arnór og tengja hann aftur við fyrra líf. Arnór segir svona frá:

„Sara hafði sam­band við mig nokkrum dögum fyrir dáleiðsl­una og bað mig að und­ir­búa mig með því að hlusta á upp­tökur af dáleiðslum sem eru aðgengi­legar á síð­unni https://sarapalsdottir.is/. Aðfara­nótt föstu­dags setti ég upp­tök­una Að elska sjálfan sig í gang þegar ég og konan mín vorum að leggj­ast til hvílu. Morg­un­inn eftir tjáði konan mín að hana hafi dreymt mig í hlut­verki þar sem ég var stans­laust í leit að stað­fest­ingu og við­ur­kenn­ingu hjá fólk­inu í kringum mig. Ég var ekki nógu góður og þar af leið­andi var ekk­ert eða eng­inn í kringum mig heldur nógu góður…

Á sunnu­dags­kvöld­inu var svo komið að dáleiðsl­unni. Eftir að hafa farið í gegnum nokkrar ein­faldar æfingar og slökun komst ég í sam­band við eigin und­ir­með­vit­und. Í und­ir­með­vit­und­inni eru allar minn­ingar sem ég hef upp­lifað í gegnum mín lífs­hlaup; eng­inn þekkir mig betur er mín eigin und­ir­með­vit­und. Eftir að hafa slakað vel á og náð að tengj­ast und­ir­með­vit­und­inni komst ég í ástand sem má helst líkja við draum. Ég var full­kom­lega með­vit­aður um umhverfi mitt, gat bæði hlustað og talað en sá fyrir mér myndir og atriði líkt og í draumi. Eftir smá aðdrag­anda sá ég fyrir mér lítið barn stand­andi í rimla­rúmi á spít­ala. Mér sýnd­ist barnið vera svona þriggja ára gam­all. Barnið var ég! Sara spurði mig hvernig mér liði og þá fann ég fyrir ótta og kvíða. Eins og við mann­inn mælt fann ég fyrir spennu upp í axlir og sting í mag­anum. Litla barnið ótt­að­ist að vera yfir­gefið, skilið eftir af því að það er eitt­hvað að því; það er ekki nógu gott eins og það er…

Það má gjarnan skjóta því inn hér að dag­inn eftir dáleiðsl­una hafði ég sam­band við móður mína og sagði henni frá þess­ari lífs­reynslu. Hún tjáði mér þá að ég hafi í raun og veru farið á spít­ala þegar ég var eins árs gam­all og þurft að vera þar í nokkra daga út af vand­ræðum með melt­ing­una; vand­ræði sem lækn­ing­ar­mið­ill­inn Einar á Ein­ars­stöðum leysti úr á end­anum. Á þessum tíma fengu for­eldrar ekki að dvelja næt­ur­langt með veikum börnum á spít­al­anum, þannig að á ein­hverjum tíma­punkti var ég vissu­lega skil­inn eftir af því að það var eitt­hvað að mér.

Sara bað mig að ganga að rimla­rúm­inu og taka litla Arnór í fangið og segja honum með hjart­anu að ég fari aldrei frá honum og að hann sé, hafi alltaf verið og muni alltaf vera alveg nógu góður alveg eins og hann er. Rétt eins og spennan og sting­ur­inn kom skyndi­lega þegar þessar til­finn­ingar voru dregnar fram, hurfu þær jafn skjótt og ég faðm­aði að mér þetta litla barn.“

Dáleiðslan stopp­aði ekki þarna. Næst var farið ennþá dýpra, ennþá lengra aftur. Til þess að heyra hver og hvar Arnór var í fyrra lífi og hvort skortur og ótti hafi fylgt honum í gegnum kyn­slóðir er bara að smella á mynd­skeiðið hér fyrir neðan eða finna þátt­inn á næstu streym­isveitu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti