Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

HSÍ í molum vegna skandala: „Ekki að fara að vinna með þessum mönnum“

Guðmundur B. Ólafsson sagði að HSÍ myndi ekki hætta samstarfi við Rapyd- myndin er samsett
Guð­mundur B. Ólafsson sagði að HSÍ myndi ekki hætta sam­starfi við Rapyd- myndin er sam­sett

Árið 2023 hefur svo sann­ar­lega verið slæmt ár fyrir Hand­knatt­leiks­sam­band Íslands. Ófar­irnar hófust með slæmum árangri íslenska karla­lands­liðs­ins á HM en þar lenti íslenska liðið aðeins í 12. sæti, langt undir getu og vænt­ingum. Þegar átti að ráða nýjan þjálf­ara voru vinnu­brögðin svo léleg að Dagur Sig­urðs­son, einn besti lands­liðs­maður í sögu Íslands og einn af okkur bestu þjálf­urum, gagn­rýndi for­ystu sam­bands­ins harka­lega og sagð­ist ekki ætla vinna með HSÍ nema skipt yrði um stjórn­endur.

„Þetta var vísir að ein­hverju leik­riti og ég skynj­aði það mjög snemma, þegar ég var spurður hvort að við ættum ekki bara að hitt­ast á kaffi­húsi. Þá vissi maður nú að það væri ekki mikið á bak­við þetta og það kom í ljós á fund­inum að þetta var bara eitt­hvað tjatt um dag­inn og veg­inn, og mér fannst þeir frekar upp­teknir af því hvort að for­mað­ur­inn og fram­kvæmda­stjór­inn yrðu ekki örugg­lega áfram í far­ar­stjórn­inni hjá lands­lið­inu. Ég var smá sjokker­aður og fannst þetta frekar skrýtið allt saman,“ sagði Dagur í sam­tali við Vísi í apríl.

„Ég held að ég sé ekki að fara að vinna með þessum mönnum hjá HSÍ. Við skulum bara vona að þetta verði flott lend­ing hjá þeim og að þeir finni góðan þjálf­ara fyrir liðið,“ sagði hann svo að lokum um málið.

Á end­anum var Snorri Steinn Guð­jóns­son, þjálf­ari Vals og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður, ráð­inn sem lands­liðs­þjálf­ari en þá höfðu liðið meira en þrír mán­uðir síðan Guð­mundur Guð­munds­son hætti með lands­liðið.

Nýjasta útspil HSÍ var að til­kynna með stuttu milli­bili um sam­starf sam­bands­ins við Rapyd og Arnarlax, tvö af umdeild­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins. Óhætt er að segja að við­brögðin hafi verið sterk hjá íslensku þjóð­inni. Einn af gagn­rýnend­unum er einmitt Guð­mundur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­þjálf­ari.

„Þessi samn­ingur milli HSÍ og Arnarlax er regin hneyksli og sýnir stór­kost­legan dóm­greind­ar­skort af hálfu for­manns HSÍ, Guð­mundar B. Ólafs­sonar,“ sagði þjálf­ar­inn í Facebook-færslu. „Að þiggja pen­inga frá þessu fyr­ir­tæki sem vill nýta sér íslenska lands­lið til að lappa upp á dap­ur­lega ímynd sína er óskilj­an­legt. Eitt get ég sagt að ég hefði aldrei sam­þykkt sem þjálf­ari lands­liðs­ins á sínum tíma að bera slíka aug­lýs­ingu.“. Þá hefur Bubbi Morthens, einn ást­sæl­asti tón­list­ar­maður lands­ins, kalla eftir afsögn for­manns HSÍ en mik­ill meiri­hluti lands­manna er á móti starf­semi Arnarlax í núver­andi mynd. Fjöl­miðlar hafa reynt að ná tali af stjórn­endum HSÍ varð­andi málið en það hefur ekki tek­ist hingað til en HSÍ hefur þegar gefið það út að það muni ekki segja upp samn­ingum við Rapyd.

Það verður því for­vitni­legt að sjá hvert næsta skref HSÍ verður og hvort að Guð­mundur B. Ólafsson for­maður og Róbert Geir Gíslason fram­kvæmda­stjóri verði áfram við stjórn­völ­inn á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti