Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Veltir því fyrir sér hvort „búið sé að afnema tjáningarfrelsið innan bæjarmarka Hafnarfjarðar“

Óskar Steinn.
Óskar Steinn.

Óskar Steinn Ómarsson segir hér sögu sína af „óvönd­uðu ráðn­ing­ar­ferli og mögu­legum póli­tískum afskiptum af starfs­manna­málum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar:

Á vor­mán­uðum sótti ég um stöðu deild­ar­stjóra tóm­stunda­mið­stöðvar Hraun­valla­skóla. Að ráðn­ing­ar­ferli loknu hringdi Lars J. Imsland, skóla­stjóri, í mig og bauð mér starfið. Ég þáði það og fékk að vita að raf­rænn ráðn­ing­ar­samn­ingur myndi ber­ast mér innan tíðar. Ég ákvað að segja engum frá strax nema yfir­manni mínum í leik­skól­anum sem ég hringdi í til að segja starfi mínu lausu. Dagana á eftir fór ég að fá skila­boð úr ýmsum áttum, m.a. frá fólki sem ég þekki innan Hraun­valla­skóla og úr stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarðar sem vildi óska mér til ham­ingju með starfið.“

Rósa Guð­bjarts­dóttir er bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar.

Óskar Steinn segir að „viku eftir að ég var ráð­inn til starfs­ins tók meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar í Hafn­ar­firði ákvörðun um að loka ung­menna­hús­inu Hamrinum, þar sem ég hef starfað í hluta­starfi frá haustinu 2019. Ég tjáði mig um þá ákvörðun og leyfði mér að gagn­rýna meiri­hluta bæj­ar­stjórnar harð­lega, eins og ég trúði að mér væri frjálst að gera sem frjáls maður í frjálsu landi. Ég skrif­aði m.a. grein um málið á Vísi þar sem ég fór yfir máls­at­vik og lá ekki á skoð­unum mínum um bæj­ar­yf­ir­völd og vinnu­brögð þeirra í mál­inu.“

Við­brögðin í kjöl­far gagn­rýni Óskars Steins komu honum í opna skjöldu:

Lars J. Andr­és­son Imsland.

„Daginn eftir að greinin birt­ist og þremur vikum eftir ráðn­ingu barst mér sím­tal frá Lars skóla­stjóra. Við nán­ari athugun hafði komið í ljós, sagði hann mér, að ég stæð­ist ekki mennt­un­ar­kröfur til starfs­ins. Falla þyrfti frá ráðn­ingu og aug­lýsa starfið upp á nýtt. Ég óskaði eftir nán­ari rök­stuðn­ingi og í honum segir að BA gráða mín í stjórn­mála­fræði sé ekki nógu skyld tóm­stunda­fræði eða mennt­un­ar­fræði til að hún geti talist sem „annað háskóla­nám sem nýt­ist í starfi.“

Í rök­stuðn­ingnum er alveg skautað fram­hjá ára­langri reynslu minni af tóm­stunda­starfi með ung­mennum og þeim fjöl­mörgu nám­skeiðum sem ég hef í fartesk­inu um ung­menna­starf. Þar að auki virð­ist það engu máli skipta að í nokkrum tóm­stunda­mið­stöðvum Hafn­ar­fjarðar starfa deild­ar­stjórar með aðra háskóla­menntun, meðal ann­ars í stjórn­mála­fræði.“

Bætir þessu við:

„En látum það liggja á milli hluta hvort ég sé endi­lega hæf­asti ein­stak­lingur lands­ins í akkúrat þetta starf. Ég var alla­vega hæf­astur þeirra sem sóttu um, enda var ég ráð­inn í starfið. Og þar liggur hníf­ur­inn í kúnni.“

Valdimar Víðisson tekur við starfi bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar í árs­byrjun 2025.

Óskar Steinn stendur nú „í stappi við Hafn­ar­fjarð­arbæ um það hvort sveit­ar­fé­lagið geti „fallið frá ráðn­ingu“ í starf sem búið er að ráða mig í. Á meðan dælir bær­inn pen­ingum útsvars­greið­enda í að aug­lýsa starfið á sam­fé­lags­miðlum og þurfti að fram­lengja umsókn­ar­frest­inn því eitt­hvað virð­ist fram­boðið lítið af góðum kandídötum í starfið – ein­hverjum öðrum en mér alla­vega.“

Hann segir að end­ingu að nú sé hann í atvinnu­leit og geti ekki annað en velt því fyrir sér hvort „búið sé að afnema tján­ing­ar­frelsið innan bæj­ar­marka Hafn­ar­fjarðar. Á mynd­inni sem fylgir þess­ari færslu er skjá­skot úr Vinnu­stund und­ir­rit­aðs þar sem sjá má að alveg frá því ég var ráð­inn hef ég verið skráður inni í mannauðs­kerfi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sem deild­ar­stjóri tóm­stunda­mið­stöðvar Hraun­valla­skóla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða