Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mannlífsárið 2020 – Bakvörður, gjaldþrot, morð, innherjar, harmleikir og dauðagildrur

Mannlífsárið 2020 – Bakvörður, gjaldþrot, morð, innherjar, harmleikir og dauðagildrur

Mannlíf óskar öllum gleði­legrar hátíðar. Rit­stjórn Mannlífs þakkar les­endum sínum góða sam­leið og stór­auk­inn lestur á árinu.

Fjöl­margar fréttir og við­töl Mannlífs vöktu mikla athygli og var mið­ill­inn leið­andi í stórum frétta­málum á árinu. Það er því við hæfi að taka saman árið með augum Mannlífs með áherslu á þær fréttir og við­töl þar sem Mannlíf ýmist sagði fyrst frá eða var leið­andi í frétta­flutn­ingi mála. Hér koma nokkur dæmi.

Farvel fór í þrot

Viktor Sveins­son, eig­andi Farvel var ákærður fyrir skatt­svik.

Mannlíf greindi fyrst frá því þegar ferða­skrif­stofan Farvel varð gjald­þrota og bjarga þurfti fjölda íslenskra stranda­glópa heim til Íslands. Þá sögðum við fréttir af því þegar lög­regla hóf rann­sókn á gjald­þrot­inu, ræddum við ótta­lausan eig­anda ferða­skrif­stof­unnar og þegar eig­and­inn var ákærður fyrir skatt­svik.

Arion banki sektaður vegna fréttar Mannlífs

Arion banki fékk á bauk­inn vegna frétta Mannlífs.

Fjár­mála­eft­ir­litið sektaði Arion banka um 87,7 millj­ónir króna á grund­velli þess að bank­inn hafi ekki birt inn­herj­a­upp­lýs­ingar nægj­an­lega tím­an­lega. Mannlíf hafði þá nokkrum dögum áður birt frétt um fyr­ir­hug­aðar upp­sagnir bank­ans og hafði fyrir því áreið­an­lega heim­ild­ar­menn. Arion banki taldi að sér væri heim­ilt að nýta heim­ild í lögum til að fresta birt­ingu umræddra upp­lýs­inga er varð­aði skipu­lags­breyt­ingar og hóp­upp­sagnir. FME féllst ekki á sjón­ar­mið bank­ans og bauð 87,7 millj­óna sekt sem sátt í mál­inu. Á það féllst Arion banki ekki og mun freista þess að áfrýja sekt­inni.

Bakvörðurinn frægi

Anna Aurora Waage. Mynd / Skjáskot af Twitter|Anna Aurora Waage. Mynd / Skjáskot af Twitter

Mannlíf var leið­andi í umfjöllun um bak­vörð­inn fræga, Önnu Auroru Waage Ósk­ars­dóttur sem sökuð var um að villa á sér heim­ildir í Covid-bak­varð­ar­sveit sem send var til Vest­fjarða í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Við ræddum meðal ann­ars við Önnu eftir hand­tök­una en hún hefur ávallt haldið fram sak­leysi sínu. Þá greindum við frá nið­ur­stöðu máls þar sem bak­vörð­ur­inn slapp við ákæru og boðar skaða­bóta­mál.

Séra Skírnir gegn Agnesi

Skírnir Garð­ar­son. Myndin / Kristinn Magn­ús­son Stundin

Mannlíf hefur leitt umfjöllun um mál­efni Séra Skírnis Garð­ars­sonar, fyrr­ver­andi hér­aðs­prests á Suð­ur­landi, gegn Agnesi Sig­urð­ar­dóttur, bisk­upi Íslands, og Þjóð­kirkj­unni sem hún stýrir. Skírnir hefur höfðað mál vegna þess skaða sem hann hafi orðið fyrir vegna færslu í emb­ætti árið 2015, í kjöl­far þess að hann kvart­aði undan því að hafa verið beittur ein­elti og svo ólög­mætum brott­rekstri fyrr á árinu. Hann fer fram á nærri tíu millj­ónir í miska- og skaða­bætur.

Play tekur flugið

Play bíður enn átekta vegna Covid-19 en líkur á því að það fari af stað með vor­inu.

Mannlíf greindi fyrst frá því að hið vænt­an­lega flug­fé­lag Play væri búið að tryggja sér lang­tíma­fjár­mögnun og stefndi á að hefja flug með haustinu. Þá greindum við frá breyttu eign­ar­haldi félags­ins með inn­komu Elíasar Skúla Skúla­sonar, stjórn­ar­for­manns og einn eig­enda flug­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Airport Associates. Hann varð aðal­eig­andi Play-flug­fé­lags­ins eftir að brú­ar­lánum hans til félags­ins var breytt í hlutafé.

Mistökin mann­skæðu hjá Krabba­meins­fé­lag­inu

Umræðan um mis­tökin hræði­legu hjá Krabba­meins­fé­lag­inu fór af stað eftir að Mannlíf greindi frá and­láti Reyn­heiðar Þóru sem lést úr krabba­meini eftir að hafa verið vit­laust greind í skimun hjá félag­inu.

Reyn­heiður greind­ist með krabba­mein rúmum tveimur mán­uðum eftir að faðir hennar lést úr sjúk­dómnum. Hún lét eftir sig eig­in­mann og tvö börn.

Grunur leikur á að mis­tök við grein­ingu krabba­meins­sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu nái aftur til árs­ins 2013. Krabba­meins­fé­lagið hefur við­ur­kennt bóta­skyldu í máli konu sem fékk ranga grein­ingu í skimun við leg­hálskrabba­meini hjá félag­inu árið 2018. Mál 11 kvenna sem fengu ranga grein­ingu í skimun hjá félag­inu eru nú á borði Embættis land­læknis. Af þeim eru nú þrjár látnar og var ein þeirra Reyn­heiður heitin.

„Ég margvar­aði við þessu og það er hrika­lega sorg­legt að þetta kosti alvar­leg veik­indi og manns­líf,“ sagði Kristján Oddsson, kven­sjúk­dóma­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands, í við­tali við Mannlífs og taldi hann sig hafa verið rek­inn fyrir að vara við þeim alvar­legu afleið­ingum sem fyr­ir­komu­lag krabba­meins­skimunar kvenna gæti haft í för með sér.

Þá ræddi Mannlíf við fyrr­ver­andi starfs­mann Krabba­meins­fé­lags Íslands, sem gekkst við því að hafa gert mann­leg mis­tök í starfi sínu en sárn­aði varn­ar­að­ferð Krabba­meins­fé­lags­ins.

Dauðagildrur Rauða krossins

Blessuð sé minn­ing Tomasar.

Manníf greindi fyrst frá því að það var Tomas Manči­auskas, tæp­lega þrí­tugur Lithái, sem fannst lát­inn í söfn­un­ar­gámi Rauða kross­ins í Kópavogi í októ­ber. Hann lét eftir sig fjög­urra ára gamla dóttur sem býr í Litháen.

Í sam­tali við Mannlíf hafn­aði Rauði kross­inn því að söfn­un­ar­gámar þeirra væru dauða­gildrur en lof­uðu því að merkja gámana betur til að koma í veg fyrir að slík dauða­slys end­ur­taki sig.

Þreif­ingar Reita rann­sak­aðar

Guðjón Auð­uns­son, for­stjori Reita.

Mannlíf greindi fyrst frá því að Kauphöll Íslands rann­sókar með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga fast­eigna­fé­lags­ins Reita. Félagið til­kynnti um boðun hlut­hafa­fundar þar sem auka átti hlutafé félags­ins um allt að 200.000.000 hluta eða um 9 millj­arða króna. Guðjón Auð­uns­son, for­stjóri Reita, sagði í við­tali að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi þreifað fyrir áhuga hlut­hafa á mögu­legri þátt­töku í útboð­inu. Stjórn­end­urnir könn­uðu því hvort áhugi væri á þátt­töku í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði í hlut­hafa­hópi félags­ins áður en til­kynnt var um það opin­ber­lega. Í sam­tali við Mannlíf vís­aði Guðjón því á bug að með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga hafi verið ábóta­vant. En hluta­hafar félags­ins voru ekki sáttir.

Covid-túr Júllans frá Ísafirði

Júlíus Geir­munds­son ÍS var kall­aður í land eftir alvar­legt hópsmit um borð.

Mannlíf greindi fyrst frá frægum Covid-túr frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS og þeirri stað­reynd að útgerðin hafi ítrekað hundsað fyr­ir­mæli sótt­varn­ar­læknis umdæm­is­ins. Þá höfum við leitt umfjöllun um við­brögð stétt­ar­fé­laga, skip­verja og for­svars­manna útgerð­ar­innar sem leitt hafa til lög­reglu­kæru, sjó­prófa og ákæru á hendur skip­stjóra tog­ar­ans sem stýrði skip­inu í túrnum fræga.

Harm­leikur & ein­elti skekur Garðabæ

Sam­fé­lagið í Garðabæ lék á reiði­skjálfi í vetur. Mannlíf greindi bæði frá svip­legu and­láti ungs drengs Sjá­lands­skóla og

ein­elt­is­máli Ólivers

í sama skóla. Fáir, ef nokkrir, draga í efa frá­sögn Sigríðar Elínar Ásmunds­dóttur af skelfi­legu ein­elti sem Ólíver sonur hennar hefur orðið fyrir.

Blessuð sé minn­ing Max­im­illian.

Mannlíf greindi frá útför ungs drengs sem fannst lát­inn í heima­húsi í Garðabæ í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Max­im­il­ian Helgi Ívarsson var aðeins ell­efu ára gam­all þegar hann lést með svip­legum hætti. Sam­fé­lagið var í sárum vegna and­láts Max­im­illian og var málið mjög umtalað á meðal barna í Garðabæ. Ekkert hefur verið gefið upp um málið annað en að ekki sé grunur uppi um neitt sak­næmt.

Margir minnt­ust Max­im­illian með fal­legum orðum þegar hann var jarð­sung­inn.

Guðrúnar yfir­læknis á sótt­varn­ar­sviði minnst: „Hún nestaði alla vel upp til fram­tíðar“

Guðrún lést langt fyrir aldur fram.

Guðrún Sig­munds­dóttir, yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði land­læknis, lést langt fyrir aldur fram eftir hetju­lega bar­áttu við krabba­mein. Hún skildi eftir sig eig­in­mann og börn.

Guðrún var meðal fremstu lækna á Íslandi á sviði sótt­varna ásamt Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni og Haraldi Bríem, fyrr­ver­andi sótt­varn­ar­lækni. Hún hafði starfað sem yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði svo ára­tugum skiptir þrátt fyrir ungan aldur. Um tíma var hún settur sótt­varn­ar­læknir. Þrátt fyrir veik­indi þá hélt Guðrún áfram störfum og var hún til að mynda skipuð fyrsti vara­maður í sam­starfs­nefnd um sótt­varnir í sumar.

Dóttir týnda leigu­bíl­stjór­ans úr Breið­holti: „Pabbi var ein­fari“

„Við vorum náin en ég var sú eina sem hann hélt sam­bandi við. Hann vildi ekki vera í sam­bandi við neina aðra,“ sagði Álf­heiður Arn­ar­dóttir, dóttir Arnar Ing­ólfs­sonar sem fannst lát­inn í Breið­holti, um föður sinn í sam­tali við Mannlíf.

Lík Arnar heit­ins fannst í rjóðri fyrir neðan Erluhóla og hafði þá verið þar í nokkurn tíma. Ekki er fylli­lega ljóst hvenær hann lést en ljóst er að það voru nokkrir mán­uðir síðan. Enginn hafði til­kynnt um hvarf hans og virt­ist eng­inn vita að hann væri týndur. Það tók lög­regl­una því langan tíma að bera kennsl á Örn sem var 83 ára þegar hann lést.

Örn Ing­ólfs­son heit­inn.

Örn var mik­ill ein­fari að sögn Álf­heiðar en hann starf­aði lengi sem leigu­bíl­stjóri í Reykja­vík. Hann skilur eftir sig eina dóttur og níu barna­börn en önnur dóttir hans lést arið 2000. Hvergi leið Erni þó betur heldur en úti í sveit segir Álf­heiður sem bjó lengi með föður sínum í Stað­ar­sveit á Snæ­fells­nesi. Hún kall­aði hann gjarnan Adda.

Harm­leikur í skjóli barna­verndar – Andlát ung­barns til rann­sóknar

Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar and­lát unga­barns sem lést á vist­heim­ili barna á vegum Barna­verndar Reykja­víkur. Andlátið átti sér stað á haust­mán­uðum og lög­reglan verst allra frétta af rann­sókn­inni að öðru leyti en því að ekki sé talið að and­látið hafi borið að með sak­næmum hætti. Ekki liggur því fyrir á þess­ari stundu hvernig and­lát barns­ins bar að og er beðið eftir nið­ur­stöðu krufn­ingar erlendiis frá.

Dauðs­fallið varð á vist­heim­ili barna á vegum Barna­vendar Reykja­víkur, úrræði sem kall­ast Mánaberg, þar sem fram fer með­ferð í for­eldra­færni. Eftir því sem Mannlíf kemst næst átti harm­leik­ur­inn sér stað í þartil­gerðri gæslu­í­búð. Íbúðin er sér­stakt úrræði þar sem for­eldrar barna eru undir sér­stöku eft­iriliti með það að mark­miði að leið­beina þeim hvernig bera eigi virð­ingu fyrir börnum sínum.

Tobba reið út í Björgvin og sakar um karl­rembu: „Ég bara fann ekki e-mailið hennar“

Þorbjörg Mar­in­ós­dóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, rit­stjóri DV, sak­aði Björgvin Hall­dórs­son söngv­ara um karl­rembu þegar hann hringdi í eig­in­mann hennar til að kvarta yfir frétt DV. Það fannst henni bæði ömur­legt og nið­ur­lægj­andi.

Tobba sak­aði Björgvin um karl­rembu.

Tobba tók það fram að hún taldi það ekki sprottið af slæmum ásetn­ingi eða dón­skap hjá Björvini að hringja í eig­in­mann hennar til að kvarta undan hennar störfum. Sjálfur vildi sögn­var­inn ekki gera mikið úr mál­inu þega Mannlíf ræddi við hann. „Ég tala bara við hana sjálfur en ég bara fann ekki e-mailið hennar. Ég á eftir að hreinsa þetta mál,“ segir Björgvin.

Í fjölda við­tala sem Mannlíf birti á þessu ári hafa ein­stak­lingar opnað sig um veik­indi, áföll, kyn­líf, fíkn, kyn­ferð­is­of­beldi, starfs­lok, for­eldra­hlut­verkið, gjald­þrot, missi, skilnað og svona mætti lengi telja. Hér má finna nokkur dæmi um við­töl sem vöktu mikla athygli á árinu.

Einka­við­tal við bak­vörð­inn: „Ég var með­höndluð eins og stór­glæpa­maður“

Anna Aurora lýsti ávallt yfir sak­leysi sínu.

„Ég lýsi algjör­lega yfir sak­leysi mínu. Það er bara verið að reyna koma á mig ein­hverri sök og drulla yfir mig,“ sagði Anna Aurora Waage Ósk­ars­dóttir í við­tali við Mannlíf vegna ásak­ana um að hafa villt á sér heim­ildir og þjófnað sem bak­vörður á Hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík. Anna Aurora full­yrðir að hún hafi ekk­ert að fela og að hún hafi frá upp­hafi sýnt fulla sam­vinnu.

Einka­við­tal við Þórdísi hjá Krabba­meins­fé­lag­inu: „Enn með kökk­inn í háls­inum“

Þórdís Björg Krist­ins­dóttir, líf­einda­fræð­ingur og fyrr­ver­andi starfs­maður Krabba­meins­fé­lags Íslands, ferð­að­ist um dimman dal eftir að upp komst um mis­tök hennar við frumu­grein­ingar hjá félag­inu. Hún gekkst við því í sam­tali við Mannlíf að hafa gert mann­leg mis­tök en sárn­aði mjög sá varn­ar­leikur félags­ins að benda á hana eina til saka. Stjórn­endur Krabba­meins­fé­lags­ins sögðu frá mis­tökum hennar í yfir­lýs­ingu og virt­ust kenna henni einni um. Þórdís var ekki nafn­greind en yfir­læknir Krabban­eins­fé­lags­ins vís­aði til starfs­manns­ins sem konu í sjón­varps­við­tali.

„Pabbi minn drap mann“

Erla Rós Bjarka­dóttir var aðeins níu ára þegar pabbi hennar gerð­ist sekur um mann­dráp. Í helg­ar­við­tali Mannlífs opn­aði hún sig um upp­vöxt­inn í skugga morðs­ins.

Erla steig fram í ein­lægu helg­ar­við­tal Mannlífs.

„Barinn með bús­á­haldi“ og „Eins og að ganga inn í slát­ur­hús“ eru meðal fyr­ir­sagna sem birt­ust í fjöl­miðlum dag­inn eftir að Bjarki Freyr Sig­ur­geirs­son varð Braga Frið­þjófs­syni að bana við Dals­hraun í Hafn­ar­firði þann 17. ágúst 2009.

Már Gunn­ars­son tón­list­ar­maður: „Það sem mér hefur alltaf fund­ist mik­il­væg­ast er jákvæðni, sann­girni og fram­kvæmda­gleði“

Már Gunn­ars­son er ekki nema tví­tugur en afreka­listi hans er þegar orð­inn ansi langur. Hann lauk árinu 2019 með glæsi­brag og rað­aði inn verð­launum og útnefn­ingum. Þrátt fyrir með­fæddan augn­sjúk­dóm sem veldur blindu sér Már ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að sinna því sem skiptir hann máli og ná góðum árangri.

Jökull Júlíusson söngvari: „Líf rokkarans getur verið einmanalegt“

Jökull, söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Kaleo, hefur búið í Banda­ríkj­unum und­an­farin ár á milli þess sem hljóm­sveitin þeyt­ist um allan heim á tón­leika­ferða­lögum. Hann við­ur­kennir að rokk­ara­lífið geti verið mjög ein­angr­andi og að hann sakni Íslands. Vin­sældir hljóm­sveit­ar­innar og verk­efnin erlendis geri þó ekki lík­legt að hann kom­ist heim á næst­unni.

Jón Svanberg Hjart­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Lands­bjargar „Þetta hefur verið gríð­ar­legt álag“

Björg­un­ar­sveit­irnar hafa leyst meira en 2.100 verk­efni í íslensku sam­fé­lagi frá 9. des­em­ber, þegar sprengilægð gekk yfir landið með til­heyr­andi hörm­ungum. Vinnu­stund­irnar í þessum útköllum eru 35 þús­und. Það jafn­gildir 20 árs­verkum. Sjálf­boða­liðar Rauða kross­ins hafa á sama tíma hjálpað ríf­lega 1.500 manns, í formi áfalla­hjálpar og með opnun fjölda­hjálp­ar­stöðva.

Skimunin úr Skógarhlíðinni

Frá ára­mótum mun hóp­leit krabba­meina flytj­ast frá Krabba­meins­fé­lag­inu; brjósta­skimunin á Eiríks­göt­una undir Land­spít­al­ann og leg­háls­skimunin á heilsu­gæsl­una. Um er að ræða stórt verk­efni og mikið hags­muna­mál fyrir konur en fátt liggur fyrir um utan­um­hald og fjár­mögnun.

Trans börn sett í hættu

Tilvist sér­staks teymis fyrir trans börn á BUGL er í upp­námi, m.a. vegna skorts á fjár­munum, þrátt fyrir að lög um kyn­rænt sjálf­ræði kveði á um starf­semi teym­is­ins. Þessu fylgir nag­andi óvissa fyrir trans ung­menni sem þurfa að reiða sig á þjón­ustu BUGL til að geta fengið nauð­syn­leg lyf. Þrjár mæður trans stúlkna, sem Mannlíf ræðir við í dag, þekkja dæmi þess að for­eldrar hafi þurft að sitja yfir börnum sínum vegna hættu á sjálfs­skaða eftir að til­kynnt var um stöðu teym­is­ins.

„Ég hætti að tala, það var til einskis“

Erna Marín Bald­urs­dóttir hefur staðið í bar­áttu frá því hún man fyrst eftir sér en stjúp­faðir hennar hóf að mis­nota hana þegar hún var fimm ára gömul. En það er ekki ofbeldið sjálft sem svíður mest í dag, heldur fálætið af hálfu þeirra sem áttu að vera til staðar og við­mót fag­að­ila sem sífellt leita afsak­ana fyrir kon­una sem einnig braut gegn henni.

Er nútímafjölskyldan að kikna undan álaginu?

Ég veit ekki hvort ég elska hann * Ég vil ekki fara í skól­ann * Hvað ef við náum ekki að borga leig­una? * Ég held að sonur minn sé í vand­ræðum en ég næ ekki til hans * Við erum búin að vera að reyna í þrjú ár en það tekst ekki að ég verði ólétt * Hvað ef ég næ ekki próf­unum? * Stjúp­dóttir mín hatar mig * Ég er alltaf að drep­ast úr kvíða * Hvað ef ég missi vinn­una? * Ég er alltaf einn eftir skóla * Við stundum aldrei kyn­líf * Þegar ég horfi í speg­il­inn þá hata ég það sem ég sé*

„Það var verið að leita að strengja­brúðu“

Fljót­lega eftir að Guð­mundur Gunn­arsson tók til starfa sem ópóli­tískur bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar varð hann þess áskynja að það voru ekki allir sáttir við ráðn­ing­una. Sam­starfið við meiri­hlut­ann ein­kennd­ist af tor­tryggni og óein­ingu og lauk skyndi­lega eftir að honum voru settir afar­kostir.

„Var alltaf hræddur, reiður og í vörn“

Bubbi Morthens er ekki óvanur því að fólk rýni í líf hans og hafi á því mis­mun­andi skoð­anir en við­ur­kennir þó að það sé bæði óþægi­leg og spenn­andi til­finn­ing að birt­ast sem per­sóna í söng­leik sem byggir á ævi hans. Honum sé þó slétt sama hvað fólki finn­ist um þá mynd sem þar birt­ist af sér, það sem skipti máli sé hvað honum finn­ist um sjálfan sig.

„Við megum ekki gleyma gleð­inni“

Daði Freyr Pét­urs­son kom, sá og sigr­aði í annað sinn sem hann og Gagna­magnið tóku þátt í Söngvakeppn­inni, með lagið Think About Things. Það er samið til 10 mán­aða gam­allar dóttur hans og eig­in­konu hans, Árnýjar Fjólu Ásmunds­dóttur. Lagið hefur fengið mikla athygli erlendis og segir Daði hana vel­komna, þótt áreitið sé gríð­ar­lega mikið nú í aðdrag­anda Eurovision-keppn­innar í Rott­er­dam í Hollandi. Hann seg­ist ætla að nýta tæki­færið til fulln­ustu, enda ekki sjálf­gefið að fá slíkt tæki­færi.

„Ég átti ekki að fæð­ast“

Gunnar Smári Egilsson gerir upp feril sem rit­stjóri, útgef­andi, stór­for­stjóri og loks stjórn­málafor­ingi öreig­anna. Barn­æskan hans mót­að­ist af alkó­hól­isma föður hans og sjálfur glímdi hann við áfeng­is­fíkn. Stofnaði Frétta­blaðið sem græddi á óbeit Davíðs Odds­sonar. Úthróp­aður vegna Frétta­tím­ans. Fékk hvergi vinnu. Þóttist hafa dreymt föður Sól­veigar Önnu til að fá hana í fram­boð í Eflingu. Sós­í­alista­flokk­ur­inn á sig­ur­braut. Þing­mennskan heillar ekki. Uppgjör Gunnars Smára.

Dagbók úr sótt­kví

Óttar M. Norð­fjörð og fjöl­skylda eru í útgöngu­banni á Spáni. Í Mannlífi lýsir hann reynsl­unni af því, heim í sótt­kví og ástandi sem hann kallar sunnu­dag­inn langa.

Skömmuð fyrir að brosa of mikið

„Þetta verður tíma­bundið ástand,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Í sam­tali við Mannlíf ræðir hún stjórn­málin, einka­lífið og COVID-19 far­ald­ur­inn sem herjar á þjóð­ina.

Hrakin úr slökkvi­lið­inu

Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir var eina konan í Slökkvi­liði Fjarða­byggðar á árunum 2017-2018. Hún lýsir enda­lausu áreiti og lít­ils­virð­ingu frá sam­starfs­mönnum sínum. Að lokum bug­að­ist hún, var send í veik­inda­leyfi og hefur verið óvinnu­fær síðan. Hún krefur nú sveit­ar­fé­lagið um miska­bætur eftir að rann­sókn óháðra aðila leiddi í ljós að stjórn­endur slökkvi­liðs­ins og sveit­ar­fé­lags­ins hefðu brugð­ist henni.

Röð kraftaverka bjargaði lífi Jónu

Jóna Elísabet Ottesen lenti í alvar­legu bílslysi í byrjun júní í fyrra og mátti engu muna að það kost­aði hana lífið. Hún er nú lömuð fyrir neðan brjóst og hefur dvalið á Grensás í níu mán­uði í end­ur­hæf­ingu. Hún segir þennan tíma hafa tekið mikið á, oft hafi hún grátið og harmað hlut­skipti sitt, en hún sé nagli og stefni nú út í lífið á nýjum for­sendum.

Jóna Elísabet hefur verið lömuð eftir bílslys í tæpa tíu mán­uði og allan tím­ann dvalið á heil­brigð­is­stofn­unum. Hún bíður nú eftir því að kom­ast heim þegar aðgerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins lýkur, seg­ist vera að læra að sætta sig við aðstæð­urnar en vissu­lega hafi hún farið í gegnum dimma dali og erfið tíma­bil á leið­inni að þeirri sátt.

„Langar að deyja án deyfilyfja“

Blessuð sé minn­ing Péturs.

Pétur Ein­ars­son glímir við ólækn­andi sjúk­dóm. Reiknar ekki með að lifa til hausts­ins. Óhræddur við dauð­ann. Dagbók krabba­meins­sjúk­lings.

„Amma heldur verndarhendi yfir mér“

Helgi Björns stendur á hátindi frægðar sinnar. Bak­ara­sveinn­inn sem varð rokk­stjarna nýtur þess að eld­ast. Hann vill enda á indíána­brennu. Lítur aldrei um öxl. Á ekki einu sinni plöt­urnar sínar. „Ég bjóst svo sem aldrei við að ná þessum aldri.“

Á frysti­tog­ara í hæla­háum skóm

Inga Sæland réði barnapíu og skellti sér í Smuguna. Í við­tali við Mannlíf segir hún frá bróð­ur­miss­inum, sárri fátækt og því þegar hún missti sjón­ina vegna lækna­mistaka fimm ára gömul. „Það má alveg kalla mig grenju­skjóðu,“ segir Inga, sem er sögð hafa grátið sig á þing. Formanni Flokks fólks­ins finnst óþægi­legt að vera í návígi við fólkið af Klaust­ur­barnum.

Uppgjör Bjarna

Bjarni Bene­diks­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, stefnir að áfram­hald­andi for­mennsku. Í við­tali við Mannlíf segir hann hvernig hann öðl­að­ist aukna vigt við að verða afi. Hann kveðst vera í litlu sam­starfi við Davíð Oddsson og er ánægður með sam­starfið við Katrínu Jak­obs­dóttur. Hallast frekar að Duran Duran en Wham. Er bjart­sýnn fyrir hönd Íslands eftir COVD-19 far­ald­ur­inn og telur að við munum koma hratt til­baka.

Verð­bréfa­sal­inn sem vill verða for­seti

Guð­mundur Franklín Jónsson athafna­maður segir spill­ingu ríkja á Íslandi og boðar breyt­ingar verði hann for­seti. Í við­tali við Mannlíf segir hann frá pöddu­söfnun í æsku, skemmti­legum sam­skiptum við Björgólf Thor og erf­iðu gjald­þroti. Hann við­ur­kennir að honum hætti til að taka „örlítið sterkt til orða“.

Ég er alla vega ekki á Tinder

Athafna­mað­ur­inn Sigmar Vil­hjálms­son segir frá lífi sínu og æsku­árum. „Ég var yngstur og vit­lausastur“. Opnar tvo nýja veit­inga­staði og ræður 130 manns í vinnu í miðjum heims­far­aldri. Stríðið við Skúla í Subway. Grínast með kær­ustu í hluta­starfi. Glímir við minni­mátt­ar­kennd.

„Hún hélt ég væri dáinn“

Gísli Már Helgason lýsir kyn­ferð­is­legri mis­notkun sem hann varð fyrir 17 ára. Sagði Ingu Sæland frá mál­inu. Reyndi að fyr­ir­fara sér árið 2010. Kærði Þórhall miðil árið 2013. Málið rann­sakað en talið fyrnt. Mið­ill­inn ját­aði hvorki né neit­aði við yfir­heyrslu.

Svala Björg­vins talar hreint út.

Ný EP-plata og skiln­að­ur­inn við æsku­ást­ina. Þriggja ára mála­ferli við Capitol Records. „Þeir lugu til um aldur minn.“

Feimnin var slig­andi

Guðni Th Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, missti kjarkinn á ræðu­nám­skeiði og faldi sig fyrir mömmu. Brostnir draumar um að verða lands­liðs­maður í hand­bolta. Jafnræði í hjóna­band­inu. Dreymir um að eign­ast hund. For­set­inn í fjall­göngu með Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi