Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlíf: Metoo ársins 2021 – TÍMALÍNA

Mannlíf: Metoo ársins 2021 – TÍMALÍNA
Jóhann Berg Guð­munds­son var skall­aður í gær

Mannlíf sagði fyrst allra fjöl­miðla frá hvort heldur meintum sem við­ur­kenndum kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar, Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar, Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar og Kolbeins Sig­þórs­sonar. Mannlíf greindi einnig fyrst frá meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar lands­liðs­manns. Þá kom Mannlíf af stað þeirri Metoo-bylgju sem enn er í gangi eftir að hafa opnað á meint brot Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns og Ingólfs Þór­ar­ins­sonar tón­list­ar­manns, sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð.

Gulldrengur fallinn af stalli

Gylfi hefur verið einn af fremstu fót­bolta­mönnum Íslands um ára­bil og sann­kölluð þjóð­hetja. Mannlíf fór yfir glæsi­legan feril Gylfa nú í sumar. Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn grun­aður um áður­nefnt brot. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gylfa er gefið að sök að hafa brotið gegn stúlku undir lög­aldri, líkt og Mannlíf greindi fyrst fjöl­miðla frá. Gull­dreng­ur­inn Gylfi er því fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun, en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að mál hans sé reist á mis­skiln­ingi og hann snúi aftur.

Gylfi hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt og hið sama má segja um aðra lands­liðs­menn í fót­bolta. Fólki er brugðið; eng­inn átti von á neinu slíku í tengslum við alla ofan­greinda lands­liðs­menn.

Gylfi seg­ist vera sak­laus og á hann ský­lausan rétt á því að verða ekki dæmdur fyr­ir­fram af einum né neinum. Hið sama má segja um aðra leik­menn íslenska lands­liðs­ins.

Fleiri í vanda

Aðstoð­ar­þjálf­ari íslenska lands­liðs­ins, Eiður Smári Guðjohn­sen náð­ist á

mynd­bands­upp­töku

í miðbæ Reykja­víkur í ann­ar­legu ástandi og var í kjöl­farið sendur í tíma­bundið leyfi frá störfum, síð­ast­lið­inn júní. Áður mætti hann

líka undir áhrifum áfengis

í útsend­ingu Símans sem sér­fræð­ingur um knatt­spyrnu.Þá hefur Mannlíf fjallað ítar­lega um kyn­ferð­is­brot og iðrun Kolbeins Sig­þórs­sonar og meinta ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar. Mannlíf opn­aði líka á meinta nauðgun Arons Einars og Eggerts Gunnþórs með því að birta frá­sögn fórn­ar­lambs­ins.

Ekki má gleyma því …

… að Mannlíf kom Metoo #2-bylgj­unni af stað með því að galopna á mál fjöl­miðla­manns­ins Sölva Tryggva­sonar. Í kjöl­farið var Mannlíf leið­andi í umfjöllun um tón­list­ar­menn­ina Ingólf Þór­ar­ins­son og Auðun Lúth­ers­son, sem er betur þekktur sem Auður.

Tímalína frétta Mannlífs – Stiklað á stóru: 

Maí

1. maí – Mannlíf opnar nýja metoo-bylgju með umfjöllun um eina af for­ystu­konum Öfga-hóps­ins sem hafði fengið nóg af þöggun sam­fé­lags­ins gagn­vart kyn­ferð­is­brotum þekktra manna. Umfjöll­unin opn­aði á meint brot Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns.

Ólöf segir þjóð­þekktan mann hafa lamið vænd­is­konu: „Ég þurfti að slá stjörnu­rykið úr aug­unum“

3. maí – Eftir umfjöllun Mannlífs steig Sölvi fram og lýsti yfir sak­leysi sínu.

Sölvi Tryggva­son sver af sér ofbeld­is­verk: „Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél“

5. maí – Mannlíf sagði frá því að tvær konur hefðu lagt fram kæru til lög­reglu vegna meints ofbeldis Sölva. Lýsingar kvenn­anna komu hér fram:

Yfir­lýs­ing kvenn­anna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Júní

13. júní – Auðunn Lúth­ers­son tón­list­ar­maður, betur þekktur sem Auður, sætti úti­lokun í sam­fé­lag­inu eftir alvar­legar ásak­anir á sam­fé­lags­miðlum um kyn­ferð­is­brot.

https://gamla.mannlif.is/frettir/audur-bannfaerdur-trubador-med-thrjar-kaerur-fyrir-kynferdisbrot-leikur-lausum-hala/

Júlí

2. júlí – Mannlíf greinir frá þeirri bylgju sam­fé­lags­miðl­anna eftir að ljóst var að ráða átti Ingó Veðurguð sem aðal­núm­erið á Þjóð­há­tíð. Tuttugu konur stigu fram og lýstu kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu hans.

„Ég er bara hissa að Þjóð­há­tíð hafi ekki grát­beðið Auði að vera með svona for the cherry on top“

5. júlí – Mannlíf tekur einka­við­tal við Ingó Veðurguð sem seg­ist stað­ráð­inn í að koma í veg fyrir að mann­orð hans verði ekki eyði­lagt.

Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

19. júlí – Mannlíf segir fyrst allra fjöl­miðla frá sögu­sögnum á sam­fé­lags­miðlum þess efnis að Gylfi Þór hafi verið hand­tek­inn vegna grun­semda um kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum

19. júlí – Mannlíf greinir frá brott­vikn­ingu Gylfa úr Everton þar sem enska úrvals­deild­ar­fé­lagið sendi frá sér til­kynn­ingu.

Lið Gylfa sendir stað­fest­ingu – Everton stað­festir brott­rekstur leik­manns félags­ins

20. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfi sé umvaf­inn fjöl­skyldu og lög­mönnum á Englandi. Á sama tíma greinir Mannlíf frá því að Alex­andra Helga, eig­in­kona Gylfa, sé komin til Íslands.

Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

21. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfi Þór sé gætt allan sól­ar­hring­inn vegna máls­ins. Þá greindu heim­ild­ar­menn frá því að Alex­andra væri flutt út af heim­ili þeirra á Englandi.

Alex­andra flutt út – Gylfi Þór vaktaður allan sól­ar­hring­inn

22. júlí – Mannlíf greinir frá frá­sögn meints þol­anda lands­liðs­mann­anna Arons Einars og Eggerts Gunnþórs. Þá treysti fórn­ar­lambið sér ekki til að nafn­greina þá né koma fram undir nafni.

Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Ágúst

12. ágúst – Mannlíf slær á sögu­sagnir þess efnis að Gylfi Þór og Alex­andra væru að skilja en sögur um slíkt voru á sveimi. Tengda­faðir Gylfa úti­lok­aði hjóna­skiln­að­inn í sam­tali við Mannlíf.

Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

25. ágúst – Mannlíf greinir frá því að allt logi á sam­fé­lags­miðlum eftir drottn­ing­ar­við­tal Akureyri.net við Aron Einar lands­liðs­fyr­ir­liða.

Akureyri.net for­dæmt fyrir við­tal við Aron Einar lands­liðs­fyr­ir­liða – Facebook-síðan logar

26. ágúst – Mannlíf sagði fyrst allra frá meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi land­liðs­manns í fót­bolta. Kvartað var til KSÍ sem aðhafð­ist ekk­ert.

Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

28. ágúst – Mannlíf sagði fyrst frá því að lands­liðs­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son hefði brotið af sér kyn­ferð­is­lega og samið um bætur eftir iðrun.

Kolbeinn Sig­þórs­son iðr­að­ist og greiddi bætur eftir kyn­ferð­is­of­beldi – Guðni þagg­aði málið niður

29. ágúst – Mannlíf greindi frá því að Kolbeinn hefði ekki verið val­inn í lands­liðið eftir að kyn­ferð­is­brot hans komust í hámæli eftir umfjöllun Mannlífs.

Kolbeinn Sig­þórs­son og Rúnar Már Sig­ur­jóns­son ekki í hópnum

Sept­em­ber

1. sept­em­ber – Kolbeinn steig loks­ins fram. Mannlíf birti yfir­lýs­ingu fót­bolta­manns­ins þar sem hann iðr­að­ist opin­ber­lega hegð­unar sinnar.

Kolbeinn Sig­þórs­son: „Ég harma mína hegðun“

16. sept­em­ber – Mannlíf fór yfir frá­sögn fórn­ar­lambs Kolbeins sem lýsti hegðun lands­liðs­manns­ins:

„Ég barði á hurð­ina og ég man að það fyrsta sem ég sagði“: „Kolbeinn Sig­þórs­son er að drepa mig“

30. sept­em­ber – Mannlíf birtir yfir­lýs­ingu Arons Einars þar sem hann lýsir full­kom­lega yfir sak­leysi sínu af meintum kyn­ferð­is­brotum.

Aron seg­ist fórn­ar­lamb en ekki ger­andi: „Settur sak­laus til hliðar í nýrri úti­lok­un­ar­menn­ingu KSÍ“

Október

1. októ­ber – Mannlíf varpar ljósi á hvað Aroni Einari er gefið að sök. Hræði­legar lýs­ingar á kvöld­inu í Kaup­manna­höfn.

Þetta er það sem Aron fyr­ir­liði er sak­aður um – Lestu hræði­legar lýs­ingar meints þol­anda

2. októ­ber – Mannlíf greindi frá því að Gylfi hefði verið leystur úr varð­haldi lög­regl­unnar en hann greiddi trygg­ingu til að losna.

Laus gegn trygg­ingu til 16. októ­ber, hvað svo?

19. októ­ber– Mannlíf greinir frá því að breska lög­reglan hefði fram­lengt rann­sókn sína á meintum kyn­ferð­is­brotum Gylfa til 16. jan­úar næst­kom­andi.

Lög­reglan rann­sakar Gylfa áfram til 16. jan­úar

22. októ­ber – Mannlíf greindi frá því að Eggert Gunnþór Jónsson, leik­maður FH, hefði verið í slag­togi með Aroni Einari, hið umdeilda kvöld í Kaup­manna­höfn 2010.

Eggert Gunnþór Jónsson sak­aður um nauðgun í sama máli og Aron Einar Gunn­ars­son

Desember

8. des­em­ber – Mannlíf segir frá yfir­hylm­ingu KSÍ í máli Arons og Eggerts. Reynt var að þagga málið niður því annar þeirra átti kær­ustu sem mátti ekki frétta af atvik­inu.

KSÍ lagði áherslu á að leyna atviki Arons og Eggerts „því annar leik­mað­ur­inn átti kær­ustu“

8. des­em­ber – Mannlíf birtir fréttir af því að KSÍ hafi vitað af meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar lands­liðs­manns. Ekkert var aðhafst í mál­inu.

Hótaði að brjóta fætur Ragnars – Lands­liðs­mað­ur­inn neitar við­tali um meinta ofbeld­is­hegðun

8. des­em­ber – Mannlíf segir fyrst frá slá­andi afsök­un­ar­bréfi vin­konu Arons og Eggerts þar sem hún afsakar hegðun sína í garð meints fórn­ar­lambs knatt­spyrnu­mann­anna. Þeir vörp­uðu sök hvor á annan og báðu vin­kon­una um að ljúga fyrir sig.

Sjáðu slá­andi afsök­un­ar­bréf vin­konu Arons og Eggerts: „Ég var neydd til að ljúga fyrir þá“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ